Ragnar kubbar Lego á YouTube: „Ég er hættur að nenna að skammast mín fyrir þetta“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. október 2016 15:30 Ragnar er mikill aðdáandi Lego. Vísir „
Það er eitthvað róandi við það að gera eitthvað skapandi en eftir forskrift,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn og uppistandarinn Ragnar Hansson sem sett hefur á laggirnar þátt á YouTube þar sem hann leysir lífsins gátur og leikur sér með Lego-kubba í leiðinni. Út eru komnir tveir þættir og í þeim nýjasta ræðir Ragnar við sálfræðing, í eigin gervi, sem spyr Ragnar af hverju hann sé enn að leika sér með leikföng. Sálfræðingurinn svarar því til að Ragnar sé augljóslega að reyna að endurupplifa æsku sína. Í samtali við Vísi segir Ragnar að það sé ekki fjarri lagi. „Eftir fjölmörg fullorðinsár að læðast í kringum hillur leikfangaverslananna með börnin mín sem afsökun þá lét ég loks undan þegar barnæska mín og uppeldi sameinaðist á litríkan og fallegan máta með samstarfi The Simpsons og nýju Stjörnustríðs myndanna við Lego,“ segir Ragnar. Honum þyki þó leiðinlegt að samfélagið líti þá hornaugu sem hafi áhuga á hlutum eins og Lego, sem flokkast venjulega undir leikföng fyrir börn.Sjá einnig: Byggir Simpsons-hús úr legó með syninumUnglingssonur Ragnars fær stundum að hjálpa.„Það er ótrúlega leiðinlegt. Þetta er einhversskonar skömm en ég er hættur að nenna að skammast mín fyrir þetta. Hvaða máli skiptir þetta eiginlega?“ spyr Ragnar sem ákvað að sameina áhugamál sín og störf í eitt með þáttunum á YouTube. Ragnar er kvikmyndagerðarmaður, uppistandari og umsjónarmaður Alvarpsins þar sem finna má fjölbreytta flóru hlaðvarpsþátta. „Ég hef ekki verið með þætti lengi og langaði að byrja aftur. Ég hef mikið verið að horfa á YouTube-þætti og allt í einu small þetta fyrir mér. Ég er með græjunar og ég kann að gera þetta,“ segir Ragnar.En af hverju Lego?„Þetta er eins og að púsla, prjóna eða fara í golf. Hugarróandi, litríkt, fallegt og skemmtilegt. Það fyndna er að mörgum finnst Lego vera dýrt og það er alveg rétt en ég held að eitt svona sett kosti svipað mikið og sálfræðitími og þetta gerir meira fyrir mig. Það er réttlætingin mín, ein af mörgum.“ Ragnar er þó ekkert að kubba hvað sem er og þar kemur kvikmynda- og sjónvarpssagan sterk inn en The Simpsons, Star Wars og Back to The Future Lego-sett eiga helst upp á pallborðið hjá Ragnari sem er mjög stoltur af því sem hann hefur kubbað. Líkt og sjá má í þættinum prýða fallegustu settinn veggina á heimili Ragnars. Hann segist þó þurfa að vanda valið enda sé takmarkað pláss fyrir settin í stofunni. „Ég er með blautan draum um Ghostbusters-stöðina og Helstirnið. Það eru tvo sett sem mig dauðlangar í,“ segir Ragnar að lokum en eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandinu eru bæði þess sett ansi vegleg.Svona lítur Lego Ghostbuster-stöðin út Svona lítur Lego Helstirnið út
Tengdar fréttir Byggir Simpsons-hús úr legó með syninum Leikstjórinn Ragnar Hansson festi nýlega kaup á hinu víðfræga Simpsons-húsi í smækkaðri mynd. 3. júlí 2014 13:30 Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira
Byggir Simpsons-hús úr legó með syninum Leikstjórinn Ragnar Hansson festi nýlega kaup á hinu víðfræga Simpsons-húsi í smækkaðri mynd. 3. júlí 2014 13:30