Náðu neyðarsendinum úr brimhvítu hafrótinu Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 29. október 2016 07:00 Aðstæður við Selatanga voru erfiðar. Mynd/Úr einkasafni „
Neyðarsendirinn fer í gang um leið og hann snertir sjóinn. Við fundum hann þrátt fyrir hafrótið því merkið sem kemur frá sendinum er mjög nákvæmt,“ segir Sigurður Ásgeirsson, þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, en áhöfn hans fór að Selatanga, rétt hjá Grindavík, til að sækja neyðarsendi sem þar var í gangi. Áhöfnin sá brátt ljóstýru frá neyðarsendinum og seig Teitur Gunnarsson sigmaður niður eftir honum. Komið hefur í ljós að sendirinn var af erlendri skútu, Red Heol, sem ætlaði að koma til Asoreyja 16. júlí í sumar. Einn maður var um borð en líklega varð hann bráðkvaddur um borð og hefur skútuna rekið um hafið. Líkið af manninum fannst svo daginn eftir.Sigurður Ásgeirsson flugstjóri með neyðarsendin sem dreginn var upp úr hafinu.Mynd/Úr einkasafni„Neyðarsendirinn gefur út ótrúlega nákvæmt merki og hver sé skráður eigandi. Við fljúgum þannig lagað séð beint á hann og notumst við sérstakar miðunargræjur til að sjá hann nákvæmlega. Tilkynningin kom um fimm leytið um nóttina og við notuðumst við nætursjónauka. Neyðarsendirinn er með litlu ljósi sem nætursjónaukinn magnar mjög mikið upp. Þannig lagað séð var þetta lítið mál,“ segir Sigurður hógvær. Skútan hafði brotnað í spón þegar hana rak upp á klettana og dreifðist hún víða um fjörurnar. „Við vildum ekki að sendirinn væri í gangi því hann gæti truflað önnur merki þannig það þurfti að sækja hann og slökkva á honum.“ Neyðarsendirinn er ekki miklu stærri en epli að sögn Sigurðar og hægt er að fá enn minni sendi sem gæti nýst fólki í vanda. „Það er hægt að fá svona neyðarsenda fyrir fólk og þetta er mjög sniðug græja eins og til dæmis fyrir rjúpnaskyttur. Þetta sparar tíma við leit því staðsetningin sem hann sendir er svo nákvæm. Ef fólk er að verða úti eða drukkna eða hvað sem er þá þarf ekki að leita lengi og gætu þeir bjargað mannslífum. Þeir eru með litlu ljósi og við sjáum ljós langt frá.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira