Rannsaka meint ofbeldi á leikskóla í Reykjavík Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. október 2016 15:48 Móðir barnsins taldi áverkana af mannavöldum og gerði yfirvöldum viðvart. Ekki er vitað hvers eðlis áverkarnir voru. vísir/vilhelm
Barnavernd Kópavogs hefur til skoðunar mál sem tengist meintu ofbeldi starfsmanns leikskóla í Reykjavík á hendur ungu barni. Þetta staðfestir Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, í samtali við Vísi. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur var vanhæf í málinu vegna tengsla við starfsmanns og var málinu því vísað til næsta sveitarfélags. Barnið er sagt hafa komið heim með áverka fyrir nokkrum dögum. Móðir þess taldi áverkana af mannavöldum og gerði því barnaverndaryfirvöldum viðvart, en ekki hafa fengist upplýsingar um hvort málið sé komið á borð lögreglunnar. Þá liggur ekki fyrir hvers eðlis áverkarnir eru. Helgi Grímsson, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir borgina nú vinna að því að safna gögnum um málið, að eigin frumkvæði. Umræddur leikskóli er hins vegar einkarekinn og hefur borgin því ekki aðhafst í málinu á þessum tímapunkti, að sögn Helga. Starfsmaðurinn sé ekki á vegum borgarinnar. Leikskólastjórinn vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og vildi ekki gefa upp hvort starfsmaðurinn sem grunaður er sé enn við störf. Staðfesti hann hins vegar að unnið sé eftir ákveðnum verkferlum þegar mál sem þessi koma upp, en vildi ekki gefa nánari upplýsingar um þá ferla.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira