Sport

Gott að byrja í þessu liði

Ingvi Þór Sæmundsson í Maribor skrifar
Gerplukonan Norma Dögg Róbertsdóttir hefur skipt úr áhaldafimleikunum yfir í hópfimleikana en hún hefur verið ein af bestu fimleikakonum Íslands síðustu ár. Hér sést hún á EM úti í Maribor í Slóveníu.
Gerplukonan Norma Dögg Róbertsdóttir hefur skipt úr áhaldafimleikunum yfir í hópfimleikana en hún hefur verið ein af bestu fimleikakonum Íslands síðustu ár. Hér sést hún á EM úti í Maribor í Slóveníu. Vísir/Steinunn Anna Svansdóttir
Það má segja að Norma Dögg hafi stokkið beint út í djúpu laugina. Hún er nú stödd í Maribor í Slóveníu þar sem ellefta Evrópumótið í hópfimleikum fer fram en þetta er hennar fyrsta mót í hópfimleikum. Hún hafði ekki einu sinni keppt á móti heima fyrir áður en hún hélt út með landsliðinu.

Norma Dögg er hluti af blönduðu liði Íslands sem komst í gær áfram í úrslit á EM. Blandaða liðið endaði í 5. sæti í undankeppninni en Ísland var um tíma með forystu eftir vel heppnaðar gólfæfingar.

„Þetta var geðveikt skemmtilegt og við fengum frábæran stuðning,“ sagði Norma Dögg í samtali við Fréttablaðið skömmu eftir að blandaða liðið hafði klárað sínar æfingar. Hún segir að það sé eitt og annað sem íslenska liðið geti bætt fyrir úrslitin sem fara fram á morgun. „Þetta var fínn fyrsti dagur en ég veit að við eigum miklu meira inni. Vonandi náum við að sýna hvað í okkur býr í úrslitunum,“ bætti þessi tvítuga fimleikadrottning við.

Norma Dögg er margfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og náði einnig góðum árangri á alþjóðlegum mótum. Hún endaði m.a. í 9. sæti í stökki á EM í áhaldafimleikum í Montpellier í Frakklandi í fyrra en það er besti árangur íslenskrar fimleikakonu á EM. En hvað fékk hana til að skipta yfir í hópfimleikana?





Vísir/Steinunn Anna Svansdóttir
Ný áskorun

„Það var kominn tími til að prufa eitthvað nýtt. Þessir krakkar tóku ótrúlega vel á móti mér og þetta er mjög skemmtilegt. Ég er mjög sátt við ákvörðun mína,“ sagði Norma Dögg brosandi. Hún segir að félagsskapurinn í hópfimleikunum skipti miklu máli.

„Félagsskapurinn er meiri. Það eru fleiri stelpur og kannski meiri stemning. En báðar íþróttirnar eru ótrúlega skemmtilegar á sinn hátt,“ sagði Norma sem lítur á þetta sem nýja áskorun á ferlinum. „Já, það mætti segja það. Það var kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.“

Norma er ekki fyrsta fimleikakonan sem færir sig úr áhaldafimleikunum yfir í hópfimleikana. Fimleikakonur á borð við Sif Pálsdóttur og Fríðu Rún Einarsdóttur, sem urðu Íslandsmeistarar í áhaldafimleikum, færðu sig t.d. yfir í hópfimleikana með góðum árangri. Þær voru báðar í liði Gerplu sem varð Evrópumeistari í hópfimleikum bæði árið 2010 og árið 2012.

Góður grunnur

Norma Dögg segir að áhaldafimleikarnir séu góður grunnur fyrir hópfimleikana. Hún segist þó enn vera að aðlagast nýjum aðstæðum.

„Þetta er öðruvísi en þetta er góður grunnur þannig að ég var fljót að ná þessu. En ég á eftir að bæta fullt af hlutum við mig,“ sagði Norma Dögg sem er ánægð með móttökurnar sem hún fékk í hópfimleikunum.

„Krakkarnir tóku vel á móti mér og hafa hjálpað mér mikið og liðsheildin er æðisleg. Það er gott að byrja í þessu liði.“

Blandaða liðið fór á kostum á gólfinu í undankeppninni í gær og er komið í úrslit á Evrópumótinu. Hér sjást þau klára æfingu sína.Vísir/Steinunn Anna Svansdóttir

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×