Valdimar: Meira rokk á næstu plötu nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 18. október 2016 22:45 „
Lagið kemur ekki út strax en við ákváðum samt að taka það í þættinum,“ segir Valdimar Guðmundsson söngvari og forsprakki hljómsveitarinnar. Hljómsveitin Valdimar frumflutti lagið Vildi að þú vissir í Loga á Stöð 2. Lagið vann Valdimar í samstarfi við tónlistarmanninn Pétur Ben. Valdimar sendi frá sér annað nýtt lag á dögunum sem heitir Slétt og fellt. Síðasta plata hljómsveitarinnar, Batnar útsýnið, kom út í lok árs 2014. „Það var kominn svolítið langur tími frá því að við gáfum út nýtt efni og við ákváðum að henda þessu lagi út,“ segir Valdimar. Slétt og fellt er einnig unnið í samstarfi við Pétur Ben en lagið er komið í spilun á helstu útvarpsstöðvum og á tónlistarveituna Spotify. Myndband við lagið var birt á youtube á föstudaginn síðastliðinn en því var leikstýrt af Óskari Kristni Vignissyni. Hljómsveitin vinnur að nýrri plötu en hún mun þó líklegast ekki koma út fyrr en á næsta ári. „Við erum komnir með hugmyndir af lögum,“ segir Valdimar en þó vantar enn dálítið upp á til þess að ljúka við þau öll. „Ég geri ráð fyrir því að á næsta ári komi út plata.“Meira rokk á næstu plötu Valdimar segir tónlist sína síður en svo vera að mildast þrátt fyrir að frumflutningur lagsins Vildi að þú vissir hafi verið lágstemmd. „Það verður væntanlega meiri rafmagnsgítar og meira rokk heldur enn áður,“ segir hann. „Svo veit maður ekkert hvernig lögin eiga eftir að þróast þannig að það getur vel verið að þau fari í allt aðra átt. En eins og staðan er núna finnst mér líklegt að þetta verði aðeins meira power.“ Airwaves hátíðin er á næsta leiti og Valdimar spilar að sjálfsögðu þar ásamt rjómanum af íslensku tónlistarfólki. Sveitin spilar á svokölluðum off-venue tónleikum á Bryggjunni á föstudaginn klukkan sex og treður svo upp í Iðnó síðar um kvöldið. Valdimar kemur einnig fram með öðrum tónlistarmönnum á hátíðinni, meðal annars Snorra Helgasyni. Valdimar er sex manna band en hljómsveitin nýtur gjarnan liðsauka þegar hún kemur fram. „Við verðum með allavega tvo eða fleiri í brasssveitinni með okkur. Það verður bara eitthvað mikið stuð,“ segir Valdimar sem leikur sjálfur á básúnu.Maraþonið var jákvæðnissprengjaValdimar tók sem kunnugt þátt í auglýsingaherferð Reykjavíkurmaraþonsins í sumar. Þjóðin fylgdist með honum æfa af kappi fyrir hlaupið en hann fór tíu kílómetra. Valdimar fullyrðir að þessi upplifun hafi haft ótrúleg áhrif á sig. „ Maður fór bara á fullu að hreyfa sig og þetta var allt ein jákvæðnissprengja, allt í kringum þetta.“ Valdimar bætir við að kostir þess að taka þátt hefðu verið miklu fleiri en þyngartapið eitt og sér. „Það var bara frábært að fá þetta tækifæri. Þarna var ofboðslega mikið af plúsum, fyrir utan á vigtinni.“ Hann segist hvergi nær hættur og heldur ótrauður áfram.
Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Lífið Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Lífið Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Lífið Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Lífið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fleiri fréttir Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Sjá meira
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög