Íslenski boltinn

Hermann: Mér er drullusama

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Hermann á hliðarlínunni í dag.
Hermann á hliðarlínunni í dag. vísir/ernir
„Þetta eru frábær þrjú stig, lífsnauðsynlega. Við vitum það allir og vissum fyrir leikinn,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-1 sigurinn á Víkingi Ólafsvík í kvöld.

„Þetta er einn af mörgum úrslitaleikjum og var sérstaklega mikilvægur. Við höfum í tíu síðustu leikjum verði í úrslitaleikjum. Þetta snérist um að ná í þessi þrjú stig, hvernig sem það væri,“ sagði Hermann.

Fylkir var yfir í hálfleik þrátt fyrir að hafa oft leikið betur í sumar en liðið gerði fyrstu 45 mínúturnar í kvöld.

„Við skorum snemma. Við spiluðum ekki frábæran fótbolta í fyrri hálfleik en við verjumst vel og refsum vel. Við náðum ekki að halda í boltann eins og við vildum en ég er til í að spila frekar lélega leiki og vinna, það er kominn tími á það.

„Við erum búnir að vera fínir í mörgum leikjum í sumar og ekki fá stig. Að fá stigin skiptir öllu.“

Fylkir lék mun betur í seinni hálfleik og átti mjög góðan kafla sem annað markið kemur upp úr.

„Í seinni hálfleik róuðum við okkur niður á boltann og það kom aðeins meiri hreyfing á liðið. Það var lykilatriði. Það lá á okkur eftir markið í fyrri hálfleik,“ sagði Hermann.

Fylkir er nú aðeins einum leik frá því að koma sér úr fallsæti. Staða sem liðið hefur ekki verið í síðan mjög snemma móts.

„Við höfum alltaf haldið trúnni og stemningunni innanbúðar en það er búið að afskrifa okkur held ég 22 í sumar.

„Þetta er ekki búið, það er fjórir leikir eftir en þetta var risa skref,“ sagði Hermann sem sagði Fylki hafa átt inni heppni frá því fyrr í sumar undir lok leiksins þegar Víkingur virtist eiga að fá vítaspyrnu.

„Þetta var ekki einu sinni aukaspyrna þannig að það er aukaatriði,“ sagði Hermann um atvikið þegar Pape fékk aukaspyrnu þegar brotið virtist vera innan teigs. Hann viðurkenndi að boltinn fór í höndina á Ásgeiri Berki innan teigs undir lokin aftur á móti.

„Hann fer örugglega í höndina á honum en það er ekki alltaf hendi víti. Hann fer í höndina en svo er það matsatriði. Við höfum átt fullt af þeim í sumar þannig að mér er alveg drullusama,“ sagði Hermann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×