Rannsókn í umfangsmiklu fjársvikamáli á lokametrunum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 28. júlí 2016 19:30 Tveir karlmenn og ein kona voru úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna málsins. Vísir/Heiða
Vísir sagði frá því þann 29. febrúar síðastliðinn að tveir karlmenn og ein kona hefðu verið handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að umfangsmiklum peningaþvætti. Heildarupphæðin sem um ræðir er um 50 milljónir krónar og teygist hluti málsins út fyrir landsteina. Lögmaðurinn Steinbergur Finnbogason var handtekinn við komu í skýrslutöku með skjólstæðing sínum, grunaður um aðild að málinu. Í kjölfar handtökunnar ver gerð húsleit á skrifstofu og heimili Steinbergs og rafræn gögn afrituð sem sönnunargögn í málinu. Um er að ræða alls 2058 möppur auk skjala sem undir þeim eru vistuð og varða ýmis mál lögmannsins. Möppurnar bera heiti eins og, einelti á vinnustað, kannabisræktun, forræðismál, hótanir og Stígamót. Auk þess eru gjarnan nöfn viðkomandi skjólstæðinga tilgreind við heitið. Steinbergur Finnbogason, héraðsdómslögmaðurHéraðssaksóknara ber að eyða gögnunum Héraðssaksóknara ber nú að eyða afritum af rafrænum gögnum sem haldlögð voru við húsleitina. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. júlí. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar en vísað frá síðastliðinn þriðjudag. Steinbergur hefur sjálfur tjáð sig um málið í aðsendum greinum í Fréttablaðið og þá síðast í gær. Héraðssaksóknari bar það fyrir sig að ef hluta gagnanna væri eytt gæti litið svo út að sönnunargögnum hefði verið spillt eða við þau átt. Þá segir héraðsdómur að burtséð frá því hvort sú sé raunin, geta slík tæknileg vandamál ekki heimilað að gögn sem fyrir fram má næstum örugglega gefa sér að geti aldrei tengst því máli sem verið er að rannsaka séu haldlögð. Rannsókn málsins ætti að ljúka fljótlega Niðurstaða héraðsdóms var sú að sönnunarbyrði hvíli á héraðssaksóknara fyrir því að gera það sennilegt að haldlögð gögn geti haft sönnunargildi í málinu. Meðal annars vegna þess að gögnin innihalda trúnaðarupplýsingar milli lögmanns og skjólstæðings. Þá var það niðurstaða dómsins að burtséð frá þeim meintu rannsóknarhagsmunum sem héraðssaksóknari byggði hald sitt á, væru aðrir hagsmunir í málinu, meðal annars þagnarskylda lögmanna og mannréttindi í meðferð sakamála. Björn Þorvaldsson héraðssaksóknari segir í samtali við Vísi að ekki verði áfrýjað og að dómur héraðsdóms standi. Hann segir jafnframt að rannsókn málsins gangi vel og ætti að ljúka fljótlega.
Tengdar fréttir Lögmaðurinn svarar fyrir sig: „Ég mun að sjálfsögðu halda mínu striki“ Steinbergur Finnbogason var úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við fjársvikamál í síðustu viku. 10. mars 2016 07:15 Misferli upp á tugi milljóna: Öll fjögur laus úr gæsluvarðhaldi Yfirheyrslum lauk yfir karli og konu í dag sem sæta grun um aðild að umfangsmiklu peningamisferlismáli sem upp kom í síðustu viku. 4. mars 2016 15:51 Misferli upp á tugi milljóna: Verjandi og margdæmdur kynferðisbrotamaður sæta gæsluvarðhaldi Lögmaður mætti til skýrslutöku hjá umbjóðanda sínum en var við það tækifæri handtekinn og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald. 2. mars 2016 07:00 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Sjá meira
Lögmaðurinn svarar fyrir sig: „Ég mun að sjálfsögðu halda mínu striki“ Steinbergur Finnbogason var úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við fjársvikamál í síðustu viku. 10. mars 2016 07:15
Misferli upp á tugi milljóna: Öll fjögur laus úr gæsluvarðhaldi Yfirheyrslum lauk yfir karli og konu í dag sem sæta grun um aðild að umfangsmiklu peningamisferlismáli sem upp kom í síðustu viku. 4. mars 2016 15:51
Misferli upp á tugi milljóna: Verjandi og margdæmdur kynferðisbrotamaður sæta gæsluvarðhaldi Lögmaður mætti til skýrslutöku hjá umbjóðanda sínum en var við það tækifæri handtekinn og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald. 2. mars 2016 07:00