Mikil mildi að ekki hafi orðið slys á fólk Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 8. júlí 2016 07:00 Slökkviliðsmenn að störfum, á myndinni kæla þeir niður annan gaskút á pallinum. Hér sést vel hversu öflug sprengingin var, glerhurðin í molum. mynd/slökkvilið akureyrar
Slökkvilið Akureyrar var kallað að íbúð í bænum á þriðjudagskvöld vegna sprengingar á gaskút sem var við gasgrill á palli utandyra. Gaskúturinn þaut inn um glerhurð og á vegg íbúðarinnar af svo miklu afli að kvarnaðist úr honum. „Þegar við komum á staðinn voru íbúarnir flúnir úr húsinu með þrjú börn sín,“ segir Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri á Akureyri. Hann segir mikla mildi að ekki hafi orðið alvarleg slys á fólki. „Heimilisfaðirinn var með ársgamalt barn sitt á trampólíni á pallinum þegar sprengingin varð, þá var annað heimilisfólk í skjóli í íbúðinni. Ef kúturinn hefði sprungið í aðra átt, þá hefði getað farið mjög illa,“ segir Ólafur. „Íbúðin var undirlögð glerbrotum. Við fórum til að tryggja vettvanginn og skoða aðstæður. Tókum myndir og skrifuðum okkar skýrslur. Á gaskútnum sjálfum, sem var úr trefjaplasti, var um það bil 10-15 cm rifa,“ segir Ólafur.Gaskúturinn sem keyptur var í Olís og er frá virtum framleiðanda í Danmörku. Hér sést rifan á kútnum.Mynd/Slökkvilið AkureyrarMannvirkjastofnun tekur við skýrslum slökkviliðsmanna og Vinnueftirlitið rannsakar kútinn. Lögregla rannsakaði líka vettvang sprengingarinnar. „Heimilisfólk hafði nýverið keypt sér tvo kúta. Þau voru búin að nota þann sem sprakk einu sinni. Hinn stóð innsiglaður. Kúturinn var ekki í notkun þegar hann sprakk. Hann stóð í sól og var í skjóli fyrir norðanáttinni, hugsanlega hitnaði hann. En það er ekki vitað og er nokkuð sem þarf að rannsaka,“ segir Ólafur. Gaskútarnir voru keyptir hjá Olís og eru frá Kosan Gas í Danmörku. Kjartan S. Guðjónsson, sölufulltrúi hjá Olís, segir Kosan Gas sé með einna mest prófuðu vöru á markaðnum. Gasflöskurnar séu prófaðar í allskonar veðráttu frá -40 C og upp í +65 C. Kosan og Olís muni vinna með rannsóknaraðilum málsins til að komast að því hvað hefur valdið þessu óhappi. „Það er ekki gott að segja hver ástæðan er, það er best að bíða niðurstöðu rannsóknar. En það sem við vitum er að þetta tengist kútnum sjálfum en ekki tengingunni,“ segir Kjartan og tekur fram að þetta sé eina tilfellið sem hann viti um. Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Sjá meira