Stjórnarformaður Strætó vonsvikinn með niðurstöðuna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. júní 2016 12:26 Strætó fór ekki eftir eigin útboðsskilmálum skv. úrskurði héraðsdóms. Mynd/GVA
Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætó BS, segist vonsvikin yfir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í síðustu viku þegar Strætó var gert að greiða fyrirtækinu Iceland Excursions Allrahanda hundrað milljónir króna fyrir að fara ekki eftir eigin útboðsskilmálum. Hún hafnar fullyrðingum Þóris Garðarssonar, stjórnarformanns Allrahands, um að um spilling hafi verið að ræða. „Við erum vonsvikin yfir því að málið hafi farið með þessum hætti. Þetta er auðvitað mál sem er orðið mjög gamalt og er langt fyrir mína tíð og okkar sem sitjum í stjórninni, þetta útboð var árið 2010. En það er búið að vera lengi í gangi og við höfum að sjálfsögðu haldið uppi vörnum fyrir Strætó BS. En þetta er allavega niðurstaðan í héraði, svo eigum við eftir að fara betur yfir þetta með lögfræðingi okkar á stjórnarfundi á föstudag og ákveða þá í framhaldi af því hver verða okkar viðbrögð,” segir Bryndís. Iceland Excursions Allrahanda stefndi Strætó vegna lokaðs útboðs árið 2010. Strætó hafði boðið út akstur á þrettán leiðum almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu, Allrahanda sendi inn tilboð en fyrirtækið Hagvagnar fékk hins vegar verkefnið þrátt fyrir að vagnar fyrirtækisins hafi ekki uppfyllt skilyrði útboðsins. Bryndís segir að allar ákvarðanir í innkaupaferlinu hafi verið teknar í samráði við sérfróðan umsjónaraðila útboðsins. „Ég var ekki stjórnarformaður á þessum tíma og sat ekki í stjórninni en við höfum alltaf notið ráðgjafar hjá innkaupadeild Reykjavíkurborgar. Í þessu máli og fleiri málum þegar við erum í útboðum þá erum við líka með VSÓ ráðgjöf með okkur þannig að við höfum bæði verið með lögfræðinga og sérfræðinga sem hafa stýrt þessu fyrir hönd samlagsins og stjórnin í á endanum tekið formlegar ákvarðanir að ráðleggingum þessara aðila.” Þórir Garðarsson stjórnarformaður Allrahanda var harðorður í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og sagði það alvarlegt mál ef byggðasamlög á borð við Strætó fylgi ekki viðurkenndum samkeppnissjónarmiðum. Þá sagði hann dóminn endurspegla spillingu í stjórn samlagsins. „Ég held að þetta sé alveg úr lausu lofti gripið. Ég bara trúi því og treysti að kjörnir fulltrúar og sveitarstjórnarmenn hérna á höfuðborgarsvæðinu sem sátu í stjórn á sínum tíma hafi gert allt til að tryggja hagsmuni Strætó á sínum tíma. Ljóst er að þarna var um lægsta útboðið að ræða og það er yfirleitt hefð fyrir því, og meira að segja lögin gera ráð fyrir því, að lægsta tilboði skuli tekið. Þannig að ég hef engar upplýsingar um og efast mjög um að um einhverja spillingu sé að ræða í þessu máli,” segir Bryndís. Þá vill hún ekki segja af eða á hvort málinu verði áfrýjað. Slík ákvörðun verði tekin á fundi stjórnarinnar á föstudag.
Tengdar fréttir Alvarlegt ef Strætó fer ekki eftir eigin útboðsreglum Strætó Bs. er gert að greiða Iceland Excursion Allrahanda ehf. 100 milljónir króna í skaðabætur fyrir að fara ekki eftir eigin útboðsskilmálum. Stjórnarformaður Allrahanda segir það alvarlegt mál ef að byggðasamlög á borð við Strætó fylgi ekki viðurkenndum samkeppnissjónarmiðum. 20. júní 2016 13:45 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira
Alvarlegt ef Strætó fer ekki eftir eigin útboðsreglum Strætó Bs. er gert að greiða Iceland Excursion Allrahanda ehf. 100 milljónir króna í skaðabætur fyrir að fara ekki eftir eigin útboðsskilmálum. Stjórnarformaður Allrahanda segir það alvarlegt mál ef að byggðasamlög á borð við Strætó fylgi ekki viðurkenndum samkeppnissjónarmiðum. 20. júní 2016 13:45