Funda næst á föstudag Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. júní 2016 07:00 Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Isavia ohf.
Enn ber mikið í milli í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra við Isavia og Samtök atvinnulífsins. Aukast því líkur á að ekki verði bundinn endi á deiluna fyrir úrskurð gerðardóms átjánda næsta mánaðar. Samningafundi lauk án árangurs á þriðjudag. Ríkissáttasemjari hefur boðað næsta fund á föstudag, sama dag og út rennur frestur sem gefinn var til samninga í lögum sem Alþingi setti á aðgerðir flugumferðarstjóra í byrjun mánaðarins. Á þá að skipa gerðardóm sem úrskurðar í deilunni. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia á það þó ekki að stöðva viðræður um einstaka þætti samnings þó að deilan sé komin á borð gerðardóms. Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Isavia, sagði við fréttastofu í gær að þess yrði freistað að ná saman á fundinum á föstudag. „Ég vona bara að við náum samningi, það er betra fyrir alla aðila,“ sagði hann.Sigurjón JónassonÞá segist Sigurjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hóflega bjartsýnn á að saman náist á fundinum. „En auðvitað vonumst við til þess að geta lent þessu með einhverjum hætti á föstudag. Annars er það bara gerðardómur,“ segir hann. Samtök atvinnulífsins og Isavia hafa lagt áherslu á að nýr samningur við flugumferðarstjóra falli að ramma SALEK-samkomulagsins, en flugumferðarstjórar hafa í ljósi manneklu og samanburðar við launa erlendis krafist meiri hækkana.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. júní 2016
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira