Innlent

AGS varar við hættu á ofhitnun hagkerfisins

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Frá fundi sendinefndar AGS í apríl síðastliðnum.
Frá fundi sendinefndar AGS í apríl síðastliðnum. vísir/pjetur
Ofhitnun hagkerfisins er einn helsti áhættuþátturinn sem Ísland stendur frammi fyrir að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Sjóðurinn sendi í gær frá sér reglubundna úttekt á efnahagsástandinu hér.

„Horfurnar eru jákvæðar. Vöxtur eykst á þessu ári og er búist við að hann verði meiri en 4,5 prósent,“ segir í tilkynningu AGS. Hagvöxtur ársins er sagður drifinn áfram af innlendri eftirspurn og hröðum uppgangi ferðaþjónustunnar. „Líklega hægir svo á vextinum í framhaldinu þegar taka að bíta aðgerðir til að slá á of mikla eftirspurn og verðbólguþrýsting.“

Bent er á að verðbólgu, sem var 1,7 prósent í maí, hafi verið haldið í skefjum af lækkandi verði innflutningsvara og styrkingu krónunnar. „Vegna mikilla launahækkana nýverið er því hins vegar spáð að verðbólga fari yfir 2,5 prósenta markið síðar á þessu ári og nái hámarki á næsta ári áður en við tekur hægfara hjöðnun hennar.“

Viðbúið er sagt að aukinn launakostnaður komi til með að hamla samkeppnishæfni þegar fram líða stundir um leið og stöðugt dragi úr afgangi af viðskiptum við útlönd. „Þessi þróun, sé henni ekki haldið í skefjum með stjórn efnahagsmála, gæti leitt til ofhitnunar hagkerfisins. Þar er hættan mest fyrir Ísland.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. júní 2016




Fleiri fréttir

Sjá meira


×