Fótbolti

Umboðsmaður Ragnars: Félög um alla Evrópu að spyrjast fyrir um Ragnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Framganga íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á Evrópumótinu í Frakklandi hefur vakið áhuga á íslensku landsliðsmönnunum. Meðal þeirra sem hafa slegið í gegn er miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson sem tók markaskorarana Harry Kane og Jamie Vardy í bakaríið á mánudagskvöldið í Nice.

Fjallað hefur verið um áhuga félaga í ensku úrvalsdeildinni á Ragnari og Martin Dahlin, umboðsmaður Ragnars, segir í samtali við Vísi að margir séu að spyrjast fyrir.

„Já, það er heilmikill áhugi á Ragnari,“ segir Dahlin sem spilaði á sínum tíma með landsliði Svía og var ein af stjörnum liðsins á HM 1994. Hann vill ekki nefna félögin sérstaklega sem hafi samband, það geri hann aldrei en áhuginn sé um alla Evrópu.

„Frammistaða hans á mótinu í heild hefur verið frábær en auðvitað opnaðist enn stærri gluggi eftir leikinn gegn Englandi,“ segir Dahlin.

Áhugi fólks í Gautaborg er mikill enda spilaði Ragnar með IFK Gautaborg við góðan orðstír. Stuðningsmenn klúbbsins eru upp til hópa úr stétt verkamanna sem kunna vel við Ragnar, leikmann sem lætur verkin tala. Hann er elskaður í borginni og víðar í Svíþjóð. Staðarblaðið í Gautaborg ræddi við Dahlin fyrr í dag um áhugann á miðverðinum fyrrverandi.

Þá hafa sænskir blaðamenn hér í Annecy sagt undirrituðum að vinsældir Ragnars ná út fyrir Gautaborg. 


Ragnar spilar sem kunnugt er með Krasnodar í Rússlandi og á tvö ár eftir af samningi þar. Dahlin útilokar ekki að Ragnar gæti yfirgefið herbúðirnar komi rétta tilboðið en hann sé þó ánægður hjá félaginu.



Ragnar hefur endurtekið greint frá áhuga sínum á að spila fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Hver veit nema sá draumur rætist en undirritaður fullyrðir að enska félagið gæti nýtt sér krafta Ragnars.

Að neðan má sjá svipmyndir af Ragnari í leiknum gegn Englandi þar sem hann var valinn maður leiksins.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur áFacebook,Twitterog Snapchat (sport365).



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×