Róbert: Getum verið meðal lélegustu liða í heimi Anton Ingi Leifsson skrifar 11. júní 2016 22:30 Róbert í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. vísir/skjáskot
Róbert Gunnarsson, línumaður Íslands, segir að Portúgala beri að varast, en liðin mætast í fyrri umspilsleiknum um laust sæti á HM í Laugardalshöllinni á morgun. Liðin mættust í tveimur æfingarleikjum í janúar áður en Ísland hélt á EM, en Portúgalar unnu annan leikinn og komu Íslendingum á óvart. „Við lærðum það að það má ekki vanmeta þá, en það sem er gott við leikina í janúar er að við vitum hvar þeir standa og hvar við stöndum," sagði Róbert í samtali við Stöð 2. „Við getum verið frábærir þegar við hittum á daginn, en getum verið meðal lélegustu liða í heimi þegar við erum ekki að hitta á daginn." „Það hefur alltaf verið okkar vandamál. Ef við gerum það sem fyrir okkur er lagt, þá verður þetta ekkert vesen," sagði línumaðurinn. Þetta eru fyrstu alvöru leikir Geirs Sveinssonar sem þjálfari Íslands og hann er spenntur fyrir verkefninu. „Þeir eru gríðarlega öflugir í hröðum upphlaupum, hraðri miðju og annari og þriðju bylgju. Þar gera þeir flest sín mörk," sagði Geir. „Þeir eru með góða hornamenn og ná góðu flæði sóknarlega og hornin eru að skora mörk og svo er það línan. 65% af mörkunum koma úr þessum atriðum." Fyrirliðinn, Guðjón Valur Sigurðsson, segir að kröfurnar séu einfaldlega að vinna þessa leiki og að spila betri handbolta. „Kröfurnar eru þær sömu; að vinnan þennan leik og spila betur. Við þurfum að halda meiri stöðugleika og detta ekki svona mikið niður eins og við höfum verið að gera," sagði fyrirliðinn. Innslagið úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að ofan, en Henry Birgir Gunnarsson tók viðtölin.
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira