Umfjöllun og myndir: Portúgal - Ísland 21-20 | Strákarnir komnir á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2016 21:45 Íslensku strákarnir fagna eftir leik. vísir/epa
Ísland er komið á HM í Frakklandi á næsta ári þrátt fyrir eins marks tap, 21-20, fyrir Portúgal á útivelli í kvöld.Íslensku strákarnir unnu fyrri leikinn í Laugardalshöll á sunnudaginn 26-23 og einvígið samanlagt 46-44. Staðan var 10-7 í hálfleik í leiknum í kvöld og Ísland gat vel unað við þá stöðu miðað við sóknarleikinn sem liðið bauð upp á. Skotnýtingin var aðeins 30% og íslenska liðið tapaði átta boltum í fyrri hálfleik. Þá skoraði Ísland ekki eitt einasta mark eftir hraðaupphlaup. Aron Pálmarsson fann sig engan veginn og var búinn að klúðra fimm skotum áður en hann skoraði sitt fyrsta mark á lokamínútu fyrri hálfleiks. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason voru heldur ekki góðir og línu- og hornaspilið var ekki upp á marga fiska. Sem betur fer var varnarleikurinn góður og Björgvin Páll Gústavsson hélt uppteknum hætti frá því í fyrri leiknum. Björgvin varði alls 16 skot í leiknum, eða 43% af þeim skotum sem hann fékk á sig. Seinni hálfleikurinn var miklu betri hjá íslenska liðinu. Varnarleikurinn áfram til fyrirmyndar sem og markvarslan hjá Björgvini og sem betur fer lagaðist sóknarleikurinn mikið. Aron fann sig betur og þá kom Rúnar Kárason með mikilvægt framlag, skoraði þrjú góð mörk og var ógnandi. Þrátt fyrir bættan sóknarleik gekk íslenska liðinu bölvanlega að jafna metin, ekki síst vegna frábærrar frammistöðu Quintana í portúgalska markinu. Þessi öflugi markvörður varði alls 26 skot í leiknum, þar af þrjú vítaköst. Íslandi tókst loksins að jafna í 17-17 þegar Ásgeir Örn skoraði annað af tveimur mörkum sínum í leiknum. En þá komu þrjú portúgölsk mörk í röð og miðað við þá stöðu var íslenska liðið úr leik. En þá sýndu íslensku strákarnir styrk, lokuðu vörninni og tókst að jafna metin í 20-20. Kári Kristjánsson skoraði tvö þessara marka og Aron eitt en markið hans kom eftir frábæra baráttu hjá Arnóri Þór Gunnarssyni sem bjargaði því að boltinn færi út af. Portúgal skoraði síðasta mark leiksins en það dugði ekki til. Lokatölur 21-20 og Ísland er komið á HM.
Handbolti Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Fleiri fréttir Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sjá meira