Geir: Vorum sterkari andlega á lokakaflanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2016 23:21 Geir gefur skipanir í fyrri leiknum. vísir/stefán
Geir Sveinsson var að vonum sáttur eftir að íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sæti á HM í Frakklandi 2017 í kvöld, þrátt fyrir eins marks tap, 21-20, fyrir Portúgal á útivelli. „Verkefnið var ljóst, að koma okkur til Frakklands, og við höfðum 120 mínútur til þess. Niðurstaðan er að við förum áfram á markatölu en það skiptir engu,“ sagði Geir í samtali við Vísi eftir leikinn í kvöld.Íslenska liðið vann fyrri leikinn í Laugardalshöllinni á sunnudaginn 26-23 og einvígið samanlagt 46-44. Staðan var 10-7 í hálfleik í leiknum í kvöld og eins og tölurnar gefa til kynna var sóknarleikur íslenska liðsins skelfilegur í fyrri hálfleik. Þrátt fyrir það var munurinn aðeins þrjú mörk. „Það var vel af sér vikið að vera bara þremur mörkum undir. Við þurftum að stilla spennustigið, fækka tæknifeilunum og nýta færin okkar betur. Og það sem við töluðum um að gera í hálfleik tókst í seinni hálfleik. „Við þurftum að ná meiri stjórn á sjálfum okkur,“ sagði Geir sem var ósáttur með hversu illa íslenska liðið fór með færin sín í fyrri hálfleik. „Við fengum færin en nýttum þau ekki. Það var langmesti höfuðverkurinn auk þess að vera með átta tapaða bolta. Þetta tvennt var það sem var helst að í fyrri hálfleik.“ Þrátt fyrir erfiðleika í sókninni var varnarleikurinn góður allan leikinn og Björgvin Páll Gústavsson varði vel í markinu. „Þetta voru gríðarlega flottir leikir hjá Bjögga og ekki síður hjá vörninni. Hinir svokölluðu þristar stóðu sig einstaklega vel. Svo sýndum við karakter, gáfumst ekki upp og hættum aldrei,“ sagði Geir sem vildi þó sjá þessa góðu vörn og markvörslu skila fleiri hraðaupphlaupum í báðum leikjunum. „Það er nú eiginlega tilgangurinn með góðum varnarleik, að fá þessi ódýru mörk, og það gekk því miður engan veginn í fyrri hálfleik. En það lagaðist í seinni hálfleik.“ Að sögn Geirs vó reynslan í íslenska liðinu líka þungt á lokakaflanum. „Þetta var basl og barátta og þegar uppi var staðið vorum við kannski sterkari andlega á lokakafla leiksins. Ég skynjaði það svolítið hjá Portúgölunum, þeir eru búnir að byggja upp virkilega gott landslið en það vantar að brjóta þennan ís og komast inn á lokamót. Þeir hafa ekki þessa reynslu af svona leikjum sem margir okkar leikmanna hafa,“ sagði Geir að lokum.
Handbolti Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Sjá meira