Vill að Íslendingar kaupi veiðiflugur á 52 milljónir Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. júní 2016 07:00 Jóhannes V. Reynisson, forsvarsmaður Bláa naglans, með flugurnar sem gætu orðið þær dýrustu í heimi. vísir/vilhelm
Jóhannes V. Reynisson, forsvarsmaður Bláa naglans, vill fá íslensku þjóðina í lið með sér til þess að setja heimset í dýrustu veiðiögnum heims. Hann vill hvetja þjóðina til að safna 52 milljónum króna fyrir þremur flugum sem útbúnar hafa verið fyrir verkefnið, að nafni Blue Fighter, Pink Hope, og Victory. Peningarnir yrðu svo nýttir til að kaupa þrjú blóðrannsóknatæki sem gefin yrðu Landspítalanum til að nýta sér við krabbameinsrannsóknir. Tækin kosta samanlagt 72 milljónir króna en búið er að safna rúmum nítján milljónum. „Ég er búinn að hafa samband við Heimsmetabókina og við stefnum að því að hefja söfnunina þegar Evrópumeistaramótið byrjar og slútta henni þegar það er búið,“ segir Jóhannes og bætir við: „Við gætum hugsanlega átt Evrópumeistara í knattspyrnu en með þessu gætum við öll átt hlutdeild í að verða heimsmeistarar og eiga dýrustu flugur heims.“Flugurnar Blue Fighter, Pink Hope, og Victory.vísir/vilhelmJóhannes segir að flugurnar hlytu þá að verða öflugustu flugur í heimi líka. Hann segir framtíð krabbameinsrannsókna snúast um blóðið. „Á síðasta ári voru Bretar að fylgjast með konu sem var með breytingar á kjarnsýrum sem fóru í blóðið og þeir vissu að sýrurnar komu frá brjóstinu. Átta mánuðum síðar kom meinið fram í brjóstinu. Það segir manni eitt: Þegar þú ert búinn að skynja breytingarnar í blóðinu er hugsanlega hægt að gera við þennan litningagalla áður en meinið myndast,“ segir Jóhannes. „Lið sem er í fremstu línu í krabbameinsrannsóknum er fjársvelt varðandi tæki, það er þetta sem Blái naglinn er að snúa sér að. Fólkinu sem er í fremstu víglínu. Að það hafi nóg af tækjum og fjármagni til að athafna sig,“ segir Jóhannes.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. júní
Mest lesið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Matt Brown er látinn Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Áslaug býður í partý Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Fleiri fréttir Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“