Vörubíllinn gufaði upp hjá Bílasölu Guðfinns Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. júní 2016 07:00 Appelsínuguli Benz-vörubíllinn hans Auðuns Þorgrímssonar er horfinn og hann vill fá hann aftur. „
Ég varð fyrir því óhappi að það var stolið frá mér vörubíl – í heilu lagi,“ segir Auðunn Þorgrímsson sem leitar nú vörubíls sem hvarf í síðustu viku. „Bíllinn stóð á Bílasölu Guðfinns og hann var bara tekinn þaðan og hefur ekki sést meira,“ segir Auðunn. Vörubíllinn, sem sé af Benz gerð og hafi verið stolið aðfaranótt 29. maí, hljóti að vera einhvers staðar. „Bíllinn er reyndar gamall en það eru verðmæti í honum. Hann er með krana og öllu saman,“ rekur Auðunn sem áætlar verðmæti vörubílsins um tvær milljónir króna. „Það var eiginlega komið kauptilboð í hann en ekki búið að ganga frá því.“ Aðspurður segir Auðunn þann eða þá sem stálu gamla Benzinum hafa þurft að brjóta upp stýrislásinn og tengja rafmagn framhjá til að koma bílnum í gang. „Þetta gera engin börn. Það eru fullorðnir menn sem gera þetta,“ segir vörubílstjórinn sem telur þjófinn eða þjófana jafnvel eiga annan eins bíl og ætla að nýta hluti úr hans bíl í sinn eða jafnvel bara losa kranann frá bílnum. „Ég veit ekki hvað menn eru að pæla, það eru allir steinhissa á þessu.“ Að sögn Auðuns hafa starfsmenn bílasölunnar ekki lent í því fyrr að heilum vörubíl sé stolið af söluplaninu. „Svo vill svo illa til að þótt þar sé fullt af myndavélum þá hafði tölvan brunnið einhvern veginn yfir svo það eru engar myndir af þessu,“ segir hann. Auðunn kveður upplýsingar um vörubílinn vera í öllum lögreglubílum og á öllum lögreglustöðvum á landinu. „Þeir finna ekki neitt,“ segir Auðunn og biðlar til meðborgaranna um að hafa augun hjá sér. Hann er bjartsýnn á að árangur náist með liðsinni Fréttablaðsins og hefur ástæðu til. „Fyrir fimm eða sex árum var stolið frá mér pallbíl sem var með stýrishúsi af báti aftan á. Þá kom ég til ykkar og þið settuð mynd af bílnum í blaðið og það bar árangur strax daginn eftir.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. júníBíllinn sem hvarf.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira