Lærði það í Haukum að maður þarf að vera svolítið hrokafullur til að vinna titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2016 08:30 Stefán Rafn Sigurmannsson. Vísir/Getty
Stefán Rafn Sigurmannsson endaði feril sinn hjá Rhein-Neckar Löwen með því að verða þýskur meistari í fyrsta sinn en Löwen landaði langþráðum titli um helgina. „Ég gæti ekki verið glaðari að geta kvatt svona með titli. Ég á eftir að sakna félagsins mikið, á marga góða vini hérna. Það er frábært að geta glaðst með þeim núna," sagði Stefán Rafn Sigurmannsson í viðtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu. Rhein-Neckar Löwen hefur misst naumlega af Þýskalandsmeistaratitlinum undanfarin tvö tímabil en núna loksins tókst liðinu að vinna. Stefán Rafn skoraði tvö mörk í lokaleiknum þar sem að Rhein-Neckar Löwen vann stórsigur á TuS N-Lübbecke. Löwen endaði einu stigi fyrir ofan Flensburg og varð Þýskalandsmeistari í fyrsta sinn. Stefán Rafn Sigurmannsson varð þó ekki að verða meistari í fyrsta sinn því hann varð á sínum tíma Íslandsmeistari með Haukum. „Ég er þannig karakter, og lærði það í Haukum, að ef maður ætlar að vinna titla þá verður maður að vera svolítið hrokafullur, og hugsa að maður sé að fara að vinna. Það gerði ég í vetur," sagði Stefán í viðtalinu við Sindra og bætti við: „Ef einhver í liðinu spurði mig hvort ég héldi að við myndum vinna þennan eða hinn leikinn, þá var ég alltaf mjög sigurviss. En auðvitað voru þetta hörkuleikir og mikil barátta um titilinn, og því mjög jákvætt að við skyldum ná þessu," sagði Stefán Rafn. „Hlutirnir hafa fallið illa fyrir okkur síðustu tvö ár, með grátlegum hætti, og við eigum skilið að hafa unnið þennan titil núna," sagði Stefán Rafn. Hann mun spila með danska félaginu Aalborg Håndbold á næstu leiktíð en fyrst ætlar hann að reyna að hjálpa íslenska landsliðinu að tryggja sér sæti á EM.
Handbolti Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira