Fótbolti

Ógnar verkfall sorphirðumanna í St. Etienne fyrsta leik Íslands?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Verkföll hafa sett svip á daglegt líf í Frakklandi.
Verkföll hafa sett svip á daglegt líf í Frakklandi. AFP
Svo gæti farið að verkfall sorphirðumanna gæti haft áhrif á fyrsta leik Íslands á EM í Frakklandi, ef marka má franska fjölmiðla.

Sorphirðumenn hafa verið í verkfalli í viku og hafa borgaryfirvöld í St. Etienne áhyggjur að það gæti haft áhrif á leik Íslands og Portúgal í borginni þann 14. júní.

Til greina kemur að borgaryfirvöld grípi til aðgerða til að koma í veg fyrir að verkfallið ógni því að leikurinn geti farið fram eins og áætlað er.

Von er á fjölda Íslendinga til St. Etienne þann 14. júní, rétt eins og á aðra leiki Íslands í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×