Innlent

Alvarlega veikir bíða í marga mánuði eftir sálfræðiaðstoð

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur á Landspítala.
Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur á Landspítala. VÍSIR/SKJÁSKOT
Sálfræðilegar afleiðingar veikinda geta oft verið miklar en eftirspurn eftir sálfræðihjálp innan veggja Landspítalans hefur aukist mikið undanfarin misseri. Margra mánaða bið getur verið eftir sálfræðihjálp fyrir fólk með alvarlega sjúkdóma á spítalanum, en ásókn í þjónustuna er stundum svo mikil að ekki er hægt að anna eftirspurn og vísa þarf fólki frá. Berglind Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur á spítalanum, segir það geta haft slæm áhrif á sjúklinga að bíða lengi eftir aðstoð fagsfólks.

„Biðin getur verið mjög breytileg eftir hvers eðlis þjónustan er. Sálfræðingarnir eru staðsettir á ólíkum einingum spítalans og eru að sinna mjög fjölþættum hlutverkum. Við erum því miður töluvert undirmönnuð miðað við eftirspurn eftir þjónustu. Biðin er á bilinu ein, tvær, þrjár vikur upp í nokkra mánuði. Það fer eftir eðli þjónustunnar,“ segir Berglind. 

Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi fyrr í vikunni við Svan Pálsson sem þjáist af sjaldgæfu eitilfrumukrabbameini. Hann segist hafa þurft að bíða í þrjá mánuði eftir að fá aðstoð sálfræðings við að vinna úr því áfalli sem fylgdi því að greinast með alvarlegan sjúkdóm. Berglind segir það vissulega geta haft slæm áhrif að bíða svo lengi eftir aðstoð fagfólks.

„Það getur náttúrlega haft slæmar afleiðingar fyrir þann einstakling sem er að sækja eftir þjónustunni að fá hana ekki strax. Það er alveg ofboðslega sorglegt að geta ekki veitt þjónustuna, ég veit að starfsfólkinu mínu finnst það. Það er kallað eftir þessari þjónustu sem er gríðarlega jákvætt. Á sama tíma hefur okkar mannskapur ekki aukist þannig að oft erum við að takast á við gríðarlegan fjölda beiðna sem við náum bara ekki að anna,“ segir Berglind.  

Fimmtíu og einn sálfræðingur er starfandi á Landspítalanum. Utan geðdeildar og barnaeininga eru þó aðeins sex sálfræðingar sem sinna fjölbreyttu starfi. Berglind segir að stöðugt sé verið að forgangsraða. 

„Staðan er sumstaðar sú að við getum bara veitt bráðaþjónustu. En stundum eru öll tilfellin bráð og þá er biðtími sem skapast og það er aldrei gott,“ segir Berglind Guðmundsdóttir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×