Kiel stóðst áhlaup Evrópumeistaranna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 18:10 Alfreð er kominn með Kiel í Finar Four í Köln. vísir/afp
Alfreð Gíslason er kominn með Kiel í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þrátt fyrir þriggja marka tap, 33-30, fyrir Evrópumeisturum Barcelona á útivelli í dag. Kiel vann fyrri leikinn með fimm mörkum, 29-24, og einvígið því samanlagt 59-57. Kiel var í góðum málum lengst af í Palau Blaugrana í dag en í upphafi seinni hálfleiks leiddu þýsku meistararnir með fjórum mörkum, 15-19. Þá kom kraftur í Börsunga sem jöfnuðu metin og náðu svo forystunni. Og þegar rúmar fimm mínútur voru eftir kom Guðjón Valur Sigurðsson Barcelona fimm mörkum yfir, 31-26. Kiel sýndi hins vegar mikla þrautseigju á lokakaflanum, Joan Canellas skoraði þrjú mörk í röð og Niklas Landin varði mikilvæga bolta í markinu. Leikmenn Kiel stóðust áhlaup Barcelona og fögnuðu vel og innilega þegar lokaflautið gall. Lokatölur 33-30, Barcelona í vil. Guðjón Valur skoraði fimm mörk fyrir Barcelona í sínum síðasta Evrópuleik fyrir félagið. Raúl Entrerrios var markahæstur í liði Börsunga með sex mörk. Canellas og Marko Vujin skoruðu sex mörk hvor fyrir Kiel.
Handbolti Tengdar fréttir Aron og félagar komnir til Kölnar Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém eru komnir áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir 30-30 jafntefli við Vardar í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitunum í dag. 30. apríl 2016 17:19 Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira
Aron og félagar komnir til Kölnar Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém eru komnir áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir 30-30 jafntefli við Vardar í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitunum í dag. 30. apríl 2016 17:19