Meiri hagnaður hjá WOW en Icelandair Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2016 07:00 Afkoma WOW air batnar á milli ára. Fréttablaðið/Vilhelm
Rekstrarhagnaður WOW air án afskrifta á fyrsta ársfjórðungi (EBITDA) var 680 milljónir króna og jókst um milljarð milli ára, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Rekstrarhagnaðurinn er meiri hjá WOW en hjá Icelandair Group. Samkvæmt afkomutilkynningu var rekstrarhagnaður Icelandair Group rétt undir 140 milljónum króna, en var neikvæður um 281 milljón króna í fyrra. Hagnaður WOW air eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi var 400 milljónir króna samanborið við 280 milljóna tap á fyrsta ársfjórðungi árið 2015. Tap Icelandair Group eftir skatta á fyrsta fjórðungi var 2,1 milljarður en var 1,8 milljarðar í fyrra. Skúli Mogensen, forstjóri WOW, er ánægður með afkomuna. „Við höfum vaxið hratt og það er ánægjulegt að sjá hversu vel okkur hefur tekist að ná frábærri nýtingu yfir vetrarmánuðina þrátt fyrir meira en tvöföldun á framboði,“ segir hann. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, er líka sáttur og segir að árið fari ágætlega af stað. „Fyrsti fjórðungur ársins er jafnan þungur í rekstri þar sem mikið af kostnaði er gjaldfærður á fjórðungnum sem tengist auknu umfangi á háönn og er það því ánægjulegt að sjá að EBITDA 1. ársfjórðungs er jákvæð í fyrsta sinn síðan árið 2010,“ segir forstjórinn.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 29. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira