Guðmundur er ekki að þjálfa íslenska landsliðið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. apríl 2016 16:00 Danskir fjölmiðlar hafa þjarmað að Guðmundi eftir ÓL-umspilið þó svo hann hafi komið liðinu til Ríó. vísir/getty
Danski handboltasérfræðingurinn Lars Krogh Jeppesen er gagnrýninn á danska landsliðsþjálfarann, Guðmund Þórð Guðmundsson, eftir Ólympíuumspilið um helgina. Danir komust á Ólympíuleikanna en lentu í vandræðum gegn bæði Noregi og Barein. Þeir gerðu jafntefli við Noreg og unnu Barein aðeins með tveggja marka mun. Svona ósannfærandi frammistaða fór illa í dönsku pressuna þó svo Guðmundur hafi komið liðinu til Ríó. „Það munaði litlu að það yrði stórslys og það er ekkert við þessa leiki sem fær mig til að hafa meiri trú á liðinu,“ sagði Jeppesen í samtali við Ekstrabladet en hann starfar fyrir DR og er fyrrum landsliðsmaður. „Leikmennirnir eru tveimur árum eldri síðan Wilbek var með liðið og ekki eins góðir. Það er hægt að laga mikið og það er áhyggjuefni hvað við fáum lítið út úr mönnum eins og Rasmus Lauge, Mads Mensah og Mikkel Hansen.“ Jeppesen segir að varnarleikurinn gangi ekki upp með þetta lið og skilur ekki hvað stórir menn séu að vaða út gegn minni og léttari mönnum. Hann gagnrýnir líka sóknarleikinn. Sóknirnar séu of langar og hraðaupphlaupin séu ekki nógu góð heldur. Danir hafa lengi búið yfir mikilli breidd en Guðmundur hefur ekki nýtt breiddina jafnvel og Ulrik Wilbek gerði á sínum tíma með liðið. „Við erum stolt af því að vera með mikla breidd en Guðmundir nýtir hana ekki. Hann er mjög íhaldssamur og spilar helst á sömu sjö til átta mönnunum. Hann hefur samt allt danska landsliðið. Hann er ekki að þjálfa íslenska landsliðið þar sem leikmenn númer 13 til 16 í hópnum eru ekki eins góðir og hinir.“
Handbolti Tengdar fréttir Gummi Gumm kom Dönum á Ólympíuleikana Danska landsliðið í handknattleik tryggði sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Ríó um helgina en liðið vann landslið Barein, 26-24, í kvöld. 10. apríl 2016 20:35 Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Fleiri fréttir Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Sjá meira
Gummi Gumm kom Dönum á Ólympíuleikana Danska landsliðið í handknattleik tryggði sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Ríó um helgina en liðið vann landslið Barein, 26-24, í kvöld. 10. apríl 2016 20:35