Sögulega lítið fylgi þjóðarleiðtoga Bjarki Ármannsson skrifar 16. apríl 2016 21:25 Sigurður Ingi Jóhannsson og sögulega óvinsælir leiðtogar. Réttsælis frá efst til vinstri; Gordon Brown, Harry S. Truman, Alejandro Toledo og Francoise Hollande. Vísir
Lítill stuðningur við Sigurð Inga Jóhannsson, nýjan forsætisráðherra, hefur komið fram í skoðanakönnunum frá því að hann tók við embætti í síðustu viku. Hafa ýmsir reynt að setja stuðning við hann og sitjandi ríkisstjórn í sögulegt samhengi, til að mynda á hinu vinsæla spjallsvæði Pírata á Facebook nú í kvöld.Francois Hollande Frakklandsforseti mældist árið 2013 með aðeins fimmtán prósenta fylgi í skoðanakönnunum.Vísir/AFPÞar er dregin fram umfjöllun breska miðilsins The Telegraph um nokkra af óvinsælustu leiðtogum lýðræðisríkja heimsins í nóvember árið 2013. Tilefnið var það að Francois Hollande Frakklandsforseti mældist um það leyti með aðeins fimmtán prósenta fylgi í skoðanakönnunum.Sjá einnig: Draghölt ríkisstjórn Miðlinum tókst ekki að finna dæmi um það að nokkur leiðtogi lýðræðisríkis, í það minnsta á okkar tímum, hefði notið minna fylgis í skoðanakönnunum en Alejandro Toledo, fyrrverandi forseti Perú, gerði árið 2004. Toledo mældist þá með átta prósenta fylgi meðal þjóðar sinnar eftir að hvert spillingarmálið á eftir öðru hafði komist upp og á meðan rúmur helmingur landsmanna var undir fátæktarmörkum. Hann hékk þó í embætti til ársins 2008.Gordon Brown naut stuðnings 23 prósenta sinnar þjóðar sem forsætisráðherra Bretlands árið 2009.Vísir/AFPTil samanburðar má nefna að hinn ástralski Paul Keating og hinn japanski Yukio Hatoyama, þeir forsætisráðherrar sem mælst hafa með minnst fylgi í hvoru landinu fyrir sig, náðu báðir botninum í sautján prósenta fylgi. Hatoyama sagði af sér þegar þetta met var slegið árið 2010. Engin forseti Bandaríkjanna hefur mælst með minna fylgi en Harry S. Truman, sem náði 22 prósenta fylgi undir lok forsetatíðar sinnar. Metið á Bretlandseyjum er svipað, það á Gordon Brown sem naut stuðnings 23 prósenta sinnar þjóðar sem forsætisráðherra árið 2009.Sjá einnig: Lítið traust borið til nýrrar ríkisstjórnar Engin skoðanakönnun hefur farið fram á trausti til Sigurðar Inga fyrstu dagana hans í embætti sem samsvarar nákvæmlega þeim könnunum sem hér að ofan er vitnað til og kallast á ensku „approval rating“. Nýjasti Þjóðarpúls Gallúp, sem út kom í gær, gefur þó ekki til kynna að Sigurður Ingi njóti vinsælda umfram þá þjóðarleiðtoga sem The Telegraph fjallaði um. Þar kemur fram að fimm prósent þjóðarinnar segjast helst vilja Sigurð Inga Jóhannsson sem forsætisráðherra af þeim stjórnmálamönnum sem lagðir voru fyrir í könnuninni. Katrín Jakobsdóttir með 37 prósent, Bjarni Benediktsson með tuttugu prósent og Helgi Hrafn Gunnarsson með sex prósent mældust öll með meira fylgi en sitjandi forsætisráðherrann. Líklegt verður að teljast að þetta vantraust almennings beinist ekki beint að störfum Sigurðar Inga, sem aðeins hefur gegnt embættinu í ellefu daga, en Framsóknarflokkurinn og sitjandi ríkisstjórn hafa siglt pólitískan ólgusjó frá því að fjallað var um tengsl Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins, við aflandsfélagið Wintris. Líkt og fram hefur komið, hefur ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins gefið það út að þingkosningum verði flýtt og þær fari fram næsta haust.Uppfært 23.20:Í upphaflegri útgáfu þessarar fréttar var lagt upp með að bera saman þann stuðning sem Sigurður Ingi mældist með í Þjóðarpúlsi Gallup við það fylgi sem óvinsælustu þjóðarleiðtogar annarra lýðræðisríkja mældust með á sínum tíma. Ónákvæmt er að stilla þessum niðurstöðum upp hlið við hlið, þar sem ekki er um nákvæmlega sambærilegar kannanir að ræða, og hefur fréttin verið lagfærð í samræmi við það.
Tengdar fréttir Lekastjórnin hefur lokið störfum: Hanna Birna, Icehot1 og Panama-skjölin Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem leyst var frá störfum í gær verður án efa minnst fyrir margt, ekki síst fyrir lekana þrjá sem skóku hana, en tveir þeirra leiddu til þess að ráðherrar sögðu af sér embætti. 8. apríl 2016 10:00 Draghölt ríkisstjórn Sjaldan eða aldrei hefur nokkur ríkisstjórn tekið við völdum og mætt svo hölt til leiks; hver af öðrum hafa ráðherrarnir fengist við umdeild mál sem hefðu stórskaðað hvern meðalmann. 8. apríl 2016 13:45 Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fleiri fréttir Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Sjá meira
Lekastjórnin hefur lokið störfum: Hanna Birna, Icehot1 og Panama-skjölin Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem leyst var frá störfum í gær verður án efa minnst fyrir margt, ekki síst fyrir lekana þrjá sem skóku hana, en tveir þeirra leiddu til þess að ráðherrar sögðu af sér embætti. 8. apríl 2016 10:00
Draghölt ríkisstjórn Sjaldan eða aldrei hefur nokkur ríkisstjórn tekið við völdum og mætt svo hölt til leiks; hver af öðrum hafa ráðherrarnir fengist við umdeild mál sem hefðu stórskaðað hvern meðalmann. 8. apríl 2016 13:45