Guðjón: Hlakka til að sjá hvað Geir ætlar að gera Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. apríl 2016 19:23 Guðjón Valur á æfingunni í kvöld. vísir/vilhelm
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var mættur á sína fyrstu æfingu hjá nýjum landsliðsþjálfara, Geir Sveinssyni, í Víkinni í kvöld. Fyrirliðinn fékk frí í leikjunum tveimur gegn Noregi og þeir Bjarki Már Elísson og Stefán Rafn Sigurmannsson fengu að sanna sig í staðinn. „Það var ákvörðun þjálfarans að hvíla mig og maður hlýðir því. Það voru engin leiðindi í kringum það. Annars væri ég ekki hér,“ segir Guðjón léttur en hann var eðlilega ánægður með að landsliðið væri loks komið með þjálfara. „Það er fínt að það sé búið að leysa þessi mál. Það tók sinn tíma en þeir sem vita hvernig samningamál ganga fyrir sig í Þýskalandi voru kannski farnir að geta lagt saman tvo og tvo.“ Guðjón er búinn að vera lengi í bransanum. Svo lengi að hann náði að vera með Geir í landsliðinu. „Ég hef þekkt Geir í gegnum tíðina. Ég náði æfingum með honum árið 1998 í Smáranum í Kópavogi. Þá var maður frekar stressaður yfir því að mæta á æfingar. Það var gaman af því. Ég hlakka til að sjá hvað hann ætlar að gera með okkur. Það er hans að miðla því til okkar og þetta verður örugglega gaman. „Við erum að byrja á núlli og þurfum allir að stefna upp á við. Það skiptir máli núna. Ekki það sem gerðist heldur að menn byrji með hreint borð og horfi fram á veginn,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson.Geir á æfingunni í kvöld.vísir/vilhelm
Handbolti Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira