Innlent

Maður féll af svölum

Vísir/Vilhelm
Karlmaður féll ofan af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss í Seljahverfi á ellefta tímanum í gærkvöldi og slasaðist. Hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans og mun hann ekki vera í lífshættu.

Fréttastofu er ekki nánar kunnugt um tildrög þessa og veit því ekki hvort málið er rannsakað sem saknæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×