Mikill verðmunur á páskaeggjum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. mars 2016 16:11 Allt að 57 prósent verðmunur er á páskaeggjum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. vísir/stefán
Allt að 57 prósent verðmunur er á páskaeggjum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Algengast er að 20 til 40 prósenta munur sé á hæsta og lægsta verði páskaeggja, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í matvöruverslunum í gær. Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg hjá Fjarðarkaupum og Hagkaupum en fæst hjá Samkaupum-Úrval og Nettó.Ódýrast hjá Bónus - Dýrast hjá Hagkaupum og Samkaupum Bónus var oftast með lægsta verðið eða á 20 af þeim 34 eggjum sem skoðuð voru. Hæsta verðið var oftast hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrval eða á 14 páskaeggjum af 34 og hjá Iceland á 10 eggjum. Þá voru þau egg, sem bæði voru til í Bónus og Krónunni, í flestum tilvikum einnar krónu ódýrari í Bónus. Þá var um 27 prósenta verðmunur á 450 gramma páskaeggi frá Góu sem ódýrast var í Krónunni, á 1.495 krónur, en dýrast á 1.898 krónur hjá Samkaupum-Úrval, sem er 403 krónu verðmunur. 30 prósent verðmunur var á 530 gramma draumaeggi frá Freyju sem var ódýrast á 2.198 krónur hjá Bónus en dýrast á 2.849 krónur hjá Hagkaupum, sem er 651 kr verðmunur. Nóa kropps páskaegg var ódýrast á 2.399 krónur hjá Krónunni en dýrast á 3.199 krónur hjá Iceland sem er 33 prósent verðmunur. Minnstur verðmunur í könnuninni var á Freyju desert eggjum, sex stykkjum, sem voru ódýrust á 648 krónur hjá Fjarðarkaupum en dýrust á 689 krónur hjá Hagkaupum, sem er 6 prósent verðmunur. Mestur verðmunur var 57 prósent á Nóa Síríus páskaeggi númer 3 sem var ódýrast á 759 krónur hjá Bónus en dýrast á 1.189 krónur hjá Hagkaupum, sem er 430 króna verðmunur.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Sjá meira