Reglum um formannskjör í Samfylkingunni mögulega breytt Heimir Már Pétursson skrifar 12. mars 2016 13:59
Samkvæmt núgildandi reglum um formannskjör í Samfylkingunni gæti svo farið ef þrír eða fleiri bjóða sig fram, að sá sem fengi flest atkvæði samanlagt í fyrsta til þriðja sæti yrði kjörinn formaður flokksins. Kjörstjórn leggur til á flokksstjórnarfundi í dag að þessum reglum verði breytt. Flokksstjórn Samfylkingarinar, sem er æðsta stofnun flokksins milli landsfunda, fundar í Iðnóí dag. Þar er stjórnarskráin aðal umræðuefnið og búast má við að fundurinn ræði hvort flokkurinn eigi standa aðþeim tillögum sem stjórnarskrárnefnd forsætisráðherra skilaði af sér á dögunum. En hún felur í sér takmarkaðar breytingar á stjórnarskránni. Helgi Hjörvar, sem er annar þeirra sem tilkynnt hefur að hann bjóði sig fram til embættis formanns, leggst gegn því að Samfylkingin standi að afgreiðslu málsins á Alþingi og tekur þar með undir með Pírötum íþeim efnum. En þeir vilja aðá næsta kjörtímabili verði unnið að gerð stjórnarskrár á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs á stuttu þingi sem verði síðan rofið og boðað til kosninga. „Já, ég tel að sú hugmynd að við förum fram með fá afmörkuð mál í næstu kosningum og stefnum að stuttu kjörtímabili sé góð til að endurvekja traust á milli stjórnmálanna og kjósenda í landinu,“ segir Helgi.Helgi Hjörvar.Vísir/GVAKosningabandalag um fámálÞá myndir þú jafnvel mæla með því að flokkarnir sem nú eru í stjórnarandstöðu færu fram saman í kosningabandalagi, eða hvað? „Já. Værum með skýr afmörkuð loforð um aðildarumsóknina (þjóðaratkvæðagreiðslu), um stjórnarskrána en líka um húsnæðismál, jöfnuð og velferð.“ Helgi segir hugsanlegt að samþykkja tillögu stjórnarskrárnefndar um þjóðaratkvæðagreiðslur en að öðru leyti telji hann engar líkur á að Alþingi afgreiði tillögur stjórnarskrárnefndar forsætisráðherra. „En ég held að við eigum eigi að síður að halda áfram baráttunni fyrir nýrri heildar stjórnarskrá sem tekur á öllum þeim stóru viðfangsefnum sem við þurfum til að berjast gegn spillingu og fyrir opnu, gagnsæu og lýðræðislegu samfélagi.“Breytingar á formannskjöriSamkvæmt reglum Samfylkingarinnar um formannskjör þarf frambjóðandi að ná yfir 50 prósentum atkvæða í embættið. Ef þrír væru í framboði ber kjósendum að gefa þeim tölurnar 1, 2 og 3 og ef enginn þeirra næði tilskyldum meirihluta eru talin saman atkvæði sem frambjóðendur fá í fyrsta og annað sætið. Ef það dugar heldur ekki til að frambjóðandi hafi meira en 50 prósent atkvæða á bakvið sig eru talin atkvæði manna í fyrsta, annað og þriðja sætið. Þetta þýðir að frambjóðandi sem hefði flest atkvæði í þriðja sæti en fá atkvæði í sæti þar fyrir ofan gæti orðið formaður. Kjörstjórn flokksins leggur til að reglunum verði breytt þannig að ef enginn nái tilskyldum meirihluta í fyrstu umferð verði kosið á milli tveggja efstu í annarri umferð.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira