Á skal að ósi stemma Sigurður R. Þórðarson skrifar 17. mars 2016 07:00 Í umfjöllun Fréttablaðsins 15.03. 2016 um deilumál Hrafns Gunnlaugssonar og fleiri sumarbústaðaeigenda við Elliðavatn vekja athygli rökfærslur Bjarna Bjarnasonar, forstjóra OR, um að þessi aðgerð teljist til langtímamarkmiða sem gerð eru í þágu vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu. Ég held því miður að þessi gjörningur hljóti að teljast vera gerður í þágu einhverra annarra hagsmuna en vatnsverndar. Rök fyrir að svo muni vera á öðrum og mikilvægari sviðum umhverfisverndar í umsjá OR, sérstaklega er varðar verndun kannski verðmætustu sameignar þjóðarinnar, kalda vatnsins í Heiðmörk, virðast vera ærin. Þetta á við þegar kemur að því að stöðva meðvitaða ásókn hinna ýmsu hagsmunaaðila inn á vatnsverndarsvæði OR. Þar sem almennt er vitað að vatn er þeirrar náttúru að renna undan halla er staðsetning þessara tilteknu sumarbústaða þess vegna til muna hættuminni en þau umsvif er blasa við þegar ekið er austur yfir fjall. Til að nefna örfá dæmi um þá hættu sem blasir við framtíðarheilbrigði kaldavatnsauðlindarinnar í Heiðmörk og stofnað hefur verið til af OR og heilbrigðisyfirvöldum á svæðinu má nefna:Ótakmörkuð umsvif við jarðhitaorkuvinnslu á Hellisheiði með tilheyrandi niðurdælingu brennisteinsvetnismengaðs vatns. Aukin umsvif á Bláfjallasvæðinu auk nýlegra olíuslysa í tengslum við heimsóknir ferðamanna að Þríhnúkagíg.Flutningur 40.000 rúmmetra af olíumenguðum uppgreftri sem fluttur var af svæðinu neðan Öskjuhlíðar til losunar í Hólmsheiði, gegnt Gvendarbrunnum. Aðgerð sem reyndar var stöðvuð á síðari stigum, þegar þessir flutningar voru langt komnir.Starfsemi Waldorfskólans sunnan Lögbergs.Heimild heilbrigðisyfirvalda á höfuðborgarsvæðinu til losunar gríðarlegs magns jarðvegsúrgangs í Bolaöldum. Með sérstöku fyrirheiti sömu heilbrigðisyfirvalda um að þau sæju Bolaöldur fyrir sér sem framtíðarstaðsetningu fyrir sorpflokkun. Fréttir af þessum skelfilegu áformum mátti lesa í Morgunblaðsumfjöllun 16. mars 2012.Heimild umhverfisráðherra til keppnishalds og æfinga torfæruklúbba höfuðborgarsvæðisins í Jósepsdal, þar sem talið var í ráðuneytinu að tiltekinn dalur væri á Vestfjörðum.Auk annarra smámuna, svo sem heimildar heilbrigðisyfirvalda til dreifingar hænsnaskíts á Sandskeiði. Vegna allra framangreindra verkefna hefur undirritaður óskað skriflegra umsagna eða rökfærslna fyrir heimildum umhverfisráðuneytis og annarra stjórnsýslustofnana fyrir þessum ákvörðunum. Engu þeirra erinda hefur verið svarað, sem líka er brot á stjórnsýslulögum. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að stjórn OR ætti að líta sér nær og taka til í meira aðkallandi verkefnum en að fjarlægja nefnda sumarbústaði. Undirritaður leyfði sér óumbeðið að taka sér penna í hönd vegna sérstakrar virðingar við minningu Herdísar Þorvaldsdóttur, þáverandi formanns Landverndar, fyrir veittan stuðning við málstað okkar nokkurra félaga sem í 40 ár höfum árangurslaust leitað úrlausna vegna valdníðslu íslenskra embættismanna í svokölluðu Heiðarfjallsmáli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar