Ólafur og félagar lentu sjö mörkum undir í seinni hálfleik en unnu samt Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. mars 2016 19:44 Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk í kvöld. mynd/ifk
Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handbolta, og félagar hans í liði Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni lögðu Redbergslid á útivelli í kvöld, 30-27. Það telst svo sem ekkert til tíðinda að Kristianstad, sem er nú með tólf stiga forskot í deildinni og fyrir löngu orðið deildarmeistari, hafi unnið leik. Í kvöld lenti toppliðið þó í erfiðleikum með Redbergslid sem er í sjötta sæti deildarinnar, 17 stigum á eftir Kristianstad. Heimamenn stríddu toppliðinu mikið og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 17-14. Þeir náðu svo mest sjö marka forskoti, 23-16, þegar 20 mínútur voru eftir. Þá settu deildarmeistararnir í gírinn og skoruðu níu mörk á móti tveimur mörkum Redbergslid og jöfnuðu í 25-25. Þeir sigldu svo á endanum góðum sigri í höfn, 30-27. Ólafur Guðmundsson hafði hægt um sig í kvöld og skoraði aðeins tvö mörk í þremur skotum. Íslendingaliðið Ricoh vann einnig virkilega sterkan og þýðingarmikinn sigur á næst besta liði deildarinnar, Alingsås, 22-21, í kvöld. Heimamenn í Ricoh voru marki yfir í hálfleik, 10-9, og unnu leikinn með einu marki, 22-21, eftir spennandi lokamínútur. David Florander skoraði sigurmark Ricoh þegar 37 sekúndur voru eftir. Alingsås er í öðru sæti deildarinnar á eftir Kristianstad en Ricoh treysti stöðu sína í tíunda sætinu með sigrinum í kvöld. Liðið er nú með 18 stig og gæti með þessu áframhaldi komist hjá því að fara í umspil um áframhaldandi veru í deildinni. Tandri Már Konráðsson skoraði fjögur mörk í sjö skotum fyrir Ricoh í kvöld en Magnús Óli Magnússon skoraði eitt mark í þremur skotum.
Handbolti Mest lesið Hrókeringar í markmannsmálum Man City Enski boltinn Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Íslenski boltinn Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Fótbolti Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Fótbolti Vélmennið leiðir Opna breska Golf Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Fótbolti Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Fótbolti Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Enski boltinn Reyndi allt til að koma kúlunni niður Golf Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Sjá meira