Duvnjak reyndist Alfreð afar vel í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2016 20:08 Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í THW Kiel enda riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta á þriggja leikja sigurgöngu eftir tveggja marka heimasigur á króatíska liðinu RK Zagreb. Kiel þurfti vissulega að hafa mikið fyrir sigrinum í kvöld en vann á endanum 31-29. Króatinn Domagoj Duvnjak var markahæstur hjá Kiel með tíu mörk úr aðeins ellefu skotum og Dominik Klein skoraði sjö mörk. Kiel byrjaði ágætlega og komst í 5-3 í upphafi leiks og var einnig yfir 8-6 og 9-7. Króatarnir enduðu fyrri hálfleikin hinsvegar vel og komust þremur mörkum yfir fyrir hálfleik, 17-14. Luka Sebetic skoraði 6 mörk út 6 skotum fyrir Zagreb-liðið í fyrri hálfleiknum en það gekk betur hjá Kiel að stoppa hann í seinni hálfleiknum. . Kiel lenti mest fimm mörkum undir í upphafi seinni hálfleiks, 15-20, en þýska liðið skoraði þá fimm mörk í röð á átta mínútum og jafnaði metin í 20-20. Kiel komst síðan yfir í kjölfarið og landaði sigri í lokaleik sínum í riðlakeppninni. Kiel vann átta af fjórtán leikjum í riðlakeppninni og endaði í fjórða sæti síns riðils á eftir Paris Saint-Germain, MVM Veszprém og Flensburg-Handewitt.
Handbolti Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Sjá meira