Handbolti

Aron rólegur í sigri Veszprém

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron hafði hægt um sig í dag.
Aron hafði hægt um sig í dag. vísir/epa
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark þegar Veszprém vann tveggja marka sigur, 27-25, á Wisla Plock í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag.

Með sigrinum komust Aron og félagar á topp riðilsins en það kemur ekki í ljós fyrr en eftir leik Paris Saint-Germain og Flensburg á morgun hvar Veszprém endar.

PSG er með 22 stig, einu minna en Veszprém, og þarf að vinna Flensburg til að tryggja sér sigur í riðlinum og þar með sæti í 8-liða úrslitum. Önnur úrslit þýða að Veszprém fer beint inn í fjórðungsúrslitin þar sem liðið er með betri árangur í innbyrðis viðureignum gegn PSG.

Veszprém var með frumkvæðið í leiknum í dag, náði forystunni eftir tæpar tíu mínútur og hélt henni út leikinn.

Momir Ilic var markahæstur í liði Veszprém með sjö mörk en Gasper Marguc kom næstur með sex. Pólski landsliðsmaðurinn Michal Daszek skoraði mest fyrir Wisla Plock, eða sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×