Segja sveitarfélög virða reglur að vettugi Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. mars 2016 15:00 Dekkjakurl er víða að finna á fótboltavöllum og öðrum leikvöllum barna. Þingmenn úr öllum flokkum með Willum Þór Þórsson í fararbroddi leggja til að kurlinu verði skipt út fyrir hættuminni efni. Fréttablaðið/Stefán „
Eftirlitsumhverfið hefur brugðist,“ segir í samantekt foreldrahópsins Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar, með nýrri athugasemd við þingsályktunartillögu 17 þingmanna úr öllum flokkum um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum. „Endurnýting úrgangs með því að dreifa sótugum úrgangsdekkjum, með tilheyrandi óþrifnaði og óþægindum fyrir börnin, hefur fengið að viðgangast óáreitt,“ segir þar jafnframt. Umsögn hópsins er ítarleg, en henni fylgir 30 síðna greinargerð þar sem málið er reifað. Hópurinn, sem er með yfir 1.600 meðlimi á Facebook, leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.Þessa mynd lætur foreldrahópurinn Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar fylgja með umsögn sinni um þingsályktunartillögu um að banna notkun dekkjakurls. Myndin er samsett úr notendamyndum fólks sem hefur skráð sig á Facebook síðu hópsins.Mynd/Foreldrahópurinn NVÁT..Freyr Hermannsson er talsmaður foreldrahópsins Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar.„Kurlið er flutt inn sem úrgangur,“ segir Freyr Hermannsson, einn aðstandenda hópsins, og bætir við að það flokkist sem endurvinnsla þegar úrgangur sé tekinn og settur á gervigrasvöll. Um endurvinnslu gildi svo þær reglur að hún megi hvorki valda óþrifnaði né óþægindum. „Á svona völl fara 100 til 120 tonn af dekkjakurli og reglurnar eru virtar að vettugi.“ Þá hafnar Freyr því að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur geti ekki gripið inn í. „Þeir fara með eftirlit með þessari reglugerð og geta skikkað Reykjavíkurborg til þess að þrífa þetta.“ Í samantektinni sem fylgir umsögn hópsins er meðal annars bent á að ekki hafi verið brugðist við áskorun læknafélagsins 2010 um bann við notkun dekkjakurls. „Sveitarfélög hafa dregið lappirnar við endurnýjun dekkjakurlsvalla og haldið hefur verið áfram að nota kurl úr úrgangsdekkjum.“ Bent er á að efni í kurlinu geti haft alvarleg og oft óafturkræf áhrif á heilsu manna og á umhverfið. „Sum þeirra eru þekkt fyrir að geta valdið krabbameini, ófrjósemi og stökkbreytingum. Dekkjakurl inniheldur allt að 40 prósent sót sem fyrir utan að valda óþrifnaði og óþægindum er talið krabbameinsvaldandi. Þegar kurlið eldist myndar það ryk sem hefur áhrif á astma og veldur ofnæmi. Í vatni á völlunum, sem rennur út á skólalóðir, geta verið þungmálmar í því magni að vatnið telst mjög mengað.“ Hópurinn segir sum sveitarfélög hafa brugðist við en önnur hafi sýnt málinu lítinn áhuga. Í þeim hópi sé Reykjavíkurborg.
Tengdar fréttir Foreldrar ósáttir við að dekkjakurl verði ekki alfarið fjarlægt í ár Vísbendingar eru um að kurlið innihaldi krabbameinsvaldandi efni. 12. febrúar 2016 12:37 Ung knattspyrnukona rekur öndunarfærasjúkdóm til dekkjakurls Ung knattspyrnukona í Fram telur að bein tengsl séu á milli öndunarfærasjúkdóms sem hún glímir við og þeirri staðreynd að hún hefur spilað undanfarin 5 ár á velli sem þakinn er heilsuspillandi dekkjakurli. Hér áður fyrr var hún alltaf með sterk og heilbrigð lungu. 3. mars 2016 19:00 Endurnýjun kurlvallanna er ekki forgangsmál Samkvæmt nýrri áætlun meirihluta borgarstjórnar er endurnýjun gervigrasvalla þar sem notað er dekkjakurl ekki forgangsmál. 18. febrúar 2016 07:00 Læknir skorar á borgina að láta af „tilraun á börnunum“ í dekkjakurlinu Grunsemdir eru um að dekkjakurl sem notað er sem uppfyllingarefni á gervisgrasvöllum geti valdið eitlakrabbameini og hvítblæði. Há tíðni eitlakrabbameins hjá börnum sem hafa spilað í marki í fótbolta hefur vakið athygli. Kurlið er notað á 21 spark- og gervigrasvöll í Reykjavík. 4. mars 2016 19:26 Telur að gervigras tengist krabbameini sonar síns Breskur faðir vill að ítarlegar rannsóknir verði framkvæmdar á gervigrasvöllum og þeim gúmmíefnum sem eru notuð á þeim. 16. febrúar 2016 14:30 Vilja að Heilbrigðiseftirlitið rannsaki dekkjakurl á gervigrasvöllum Samtök sem berjast fyrir hættulausu gúmmíkurli vilja að notkun Reykjavíkurborgar á dekkjakurli verði rannsökuð. 18. febrúar 2016 20:10 Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Sjá meira
Foreldrar ósáttir við að dekkjakurl verði ekki alfarið fjarlægt í ár Vísbendingar eru um að kurlið innihaldi krabbameinsvaldandi efni. 12. febrúar 2016 12:37
Ung knattspyrnukona rekur öndunarfærasjúkdóm til dekkjakurls Ung knattspyrnukona í Fram telur að bein tengsl séu á milli öndunarfærasjúkdóms sem hún glímir við og þeirri staðreynd að hún hefur spilað undanfarin 5 ár á velli sem þakinn er heilsuspillandi dekkjakurli. Hér áður fyrr var hún alltaf með sterk og heilbrigð lungu. 3. mars 2016 19:00
Endurnýjun kurlvallanna er ekki forgangsmál Samkvæmt nýrri áætlun meirihluta borgarstjórnar er endurnýjun gervigrasvalla þar sem notað er dekkjakurl ekki forgangsmál. 18. febrúar 2016 07:00
Læknir skorar á borgina að láta af „tilraun á börnunum“ í dekkjakurlinu Grunsemdir eru um að dekkjakurl sem notað er sem uppfyllingarefni á gervisgrasvöllum geti valdið eitlakrabbameini og hvítblæði. Há tíðni eitlakrabbameins hjá börnum sem hafa spilað í marki í fótbolta hefur vakið athygli. Kurlið er notað á 21 spark- og gervigrasvöll í Reykjavík. 4. mars 2016 19:26
Telur að gervigras tengist krabbameini sonar síns Breskur faðir vill að ítarlegar rannsóknir verði framkvæmdar á gervigrasvöllum og þeim gúmmíefnum sem eru notuð á þeim. 16. febrúar 2016 14:30
Vilja að Heilbrigðiseftirlitið rannsaki dekkjakurl á gervigrasvöllum Samtök sem berjast fyrir hættulausu gúmmíkurli vilja að notkun Reykjavíkurborgar á dekkjakurli verði rannsökuð. 18. febrúar 2016 20:10