„Menn hafa ekkert að gera með hníf á almannafæri“ Ásgeir Erlendsson skrifar 7. mars 2016 19:00
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það morgunljóst að menn hafi ekkert með hníf að gera í miðbæ Reykjavíkur um helgar. Karlmaður sem stunginn var aðfaranótt sunnudags í Vesturbænum liggur enn þungt haldinn á gjörgæslu. Árásin átti sér stað aðfaranótt sunnudags á Sæmundargötu og rannsókn málsins miðar vel að sögn Árna Þórs Sigmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Enn er unnið að því að yfirheyra vitni og lögregla getur ekki tjáð sig um hvort maðurinn sem handtekinn var hafi játað sök. Meintur árásarmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á miðvikudag en fórnarlambinu er enn haldið sofandi. Þrátt fyrir tíðar fréttir af hnífamálum, merkir lögreglan ekki aukningu í slíkum málum hér á landi. Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að fyrir um sex árum hafi lögregla merkt aukningu í málum tengdum hnífum og þá hafi verið reynt að grípa í taumana. „Við ákváðum að taka reglurnar betur saman. Í vopnalögunum máttu vera með eggvopn með þér í tengslum við vinnu. Við vorum svolítið grimmir á því og tókum fyrir það ef menn voru að þvælast með þetta utan vinnu, niðrí bæ um helgar. Við tökum þessa hnífa bara af fólki. Ef við fáum útkall þar sem talað er um að hnífur sé í spilinu. Þá nálgumst við verkefnið varfærnislega og fáum sérsveitina með okkur til að yfirbuga mennina.“ Segir Jóhann. Skilaboð lögreglu eru einföld. „Venjulegur maður er ekki með hníf á sér. Þú hefur ekkert að gera með hníf niðrí bæ eða á almannafæri. Bara alls ekki.“
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira