Eftirlit með lögreglu: Deilt um hvort tillögur um eftirlitsnefnd gangi nógu langt Bjarki Ármannsson skrifar 12. febrúar 2016 16:39 Sigríður Friðjónsdóttir, Snorri Magnússon og Ólöf Nordal voru meðal þeirra sem tóku til máls á málþingi um eftirlit með störf lögreglu. Vísir
Ganga drög að frumvarpi innanríkisráðherra um eftirlitsnefnd með störfum lögreglu nógu langt í að tryggja eftirlit? Þetta er meðal þess sem rætt var á málþingi ráðuneytisins og lagadeilda Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands um hvernig efla eigi eftirlit með lögreglu. Frumvarpsdrögin byggja á tillögum nefndar ráðherra sem kynntar voru fyrir áramót. Þær gera ráð fyrir skipun þriggja manna eftirlitsnefndar sem hefði það verkefni að taka við kvörtunum eða kærum frá borgurum í garð lögreglu, greina þær og koma í viðeigandi farveg. Nefndin hefur lagt til að Lögmannafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands og innanríkisráðherra skipi sinn nefndarmanninn hvorn. Dregið hefur verið í efa að sjálfstæði eftirlitsnefndarinnar frá lögreglunni sé tryggt, meðal annars þar sem innanríkisráðherra, yfirmaður lögreglunnar, kemur til með að skipa í nefndina. Hafa ýmsir kallað eftir sjálfstæðri stofnun til að sinna þessu hlutverki og kom meira að segja fram í opnunarræðu Ólafar Nordal innanríkisráðherra á málþinginu í dag að hún hafi íhugað það hvort það þurfi að stíga stærri skref eða koma á sterkara eftirliti. Nýtt embætti héraðssaksóknara, sem tók til starfa um áramótin, annast nú rannsóknir á brotum starfsmanna innan lögreglunnar. Í drögunum að nýja frumvarpinu er ekki lögð til breyting á því, ný eftirlitsnefnd myndi einungis koma kærum eða kvörtunum áfram til héraðssaksóknara ef þörf er talin á því.Á málþinginu, sem haldið var í Háskóla Reykjavíkur í dag, tóku til máls ásamt Ólöfu þau Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, Trausti Fannar Valsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og Ragnheiður Harðardóttir, héraðsdómari.Vísir/BjarkiSkortur á sjálfstæði gagnvart lögreglu ókostur við nýtt fyrirkomulag Á málþinginu, sem haldið var í Háskóla Reykjavíkur í dag, tóku til máls ásamt Ólöfu þau Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, Trausti Fannar Valsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og Ragnheiður Harðardóttir, héraðsdómari. Ragnheiður var jafnframt formaður nefndarinnar sem skilaði tillögunum sem frumvarpsdrögin byggja á. Í máli ræðumanna, sem og í athugasemdum úr sal, var þeirri spurningu ítrekað varpað fram hvort eftirlitsnefndina sem lagt er til að skipa skorti nægilegt sjálfstæði frá lögreglu til að taka á móti og greina kærur borgara á hendur embættinu. Sigríður Friðjónsdóttir sagði að ókostur við bæði núverandi fyrirkomulag og eftirlitsnefndina sem lögð er til væri skortur á sjálfstæði gagnvart lögreglu. Drögin að frumvarpi feli þó í sér aukna skilvirkni við afgreiðslu mála. Hún benti á að í erindi til ráðherra árið 2014 varðandi það hvernig koma ætti á virku eftirliti með störfum lögreglu óskaði hún eftir sjálfstæðri einingu sem væri án tengsla við lögreglu.Sigríður Friðjónsdóttir segir að ókostur við bæði núverandi fyrirkomulag og eftirlitsnefndina sem lögð er til sé skortur á sjálfstæði gagnvart lögreglu. Vísir/Stefán„Til að auka tiltrú borgaranna á að kærur þeirra og kvartanir vegna aðgerða og aðferða lögreglu fái hlutlausa og réttláta málsmeðferð telur ríkissaksóknari heppilegra að sjálfstæð eining, utan við og án tengsla við lögregluna, sjái um meðferð þeirra mála,“ segir í því erindi. Á málþinginu í dag sagði Sigríður að slík eining hefði þó vissulega verið kostnaðarsöm og að mál hennar yrðu ekki mörg. Snorri Magnússon og Trausti Fannar Valsson gerðu sömuleiðis báðir fyrirvara við tillögur um eftirlitsnefndina. Trausti sagði ekki nægjanlega útskýrt í skýrslu nefndarinnar hvers vegna þessi tillaga var valin en ekki önnur og spurði hvort nefndin yrði nægjanlega sjálfstæð gagnvart stjórnkerfi lögreglunnar sjálfrar. Snorri ítrekaði þá skoðun sem hann hefur áður haft uppi, að það sé ótækt að ætla lögreglumönnum að rannsaka félaga sína. Hann sagði sömuleiðis að bæði almenningur og lögreglumenn yrðu að geta treyst á að mál sem þessi væru skoðuð af hlutleysi. Gagnrýnisraddir væru innan lögreglunnar á tillögurnar en þær séu þó vissulega skárri en að halda kerfinu óbreyttu. „Við gerum okkur grein fyrir því að mörgum mun ekki þykja nógu langt gengið,“ sagði Ragnheiður í erindi sínu. „En vil segja í því samhengi að það nægir ekki að eftirlit með lögreglu líti vel út, það verður líka að virka.“ Ragnheiður segir nefnd ráðherra hafi komist að þeirri niðurstöðu að lítill fjöldi mála sem sjálfstæðri stofnun myndi berast, myndi hafa í för með sér að eftirlitið yrði ekki mjög öflugt. Þá segir hún mikilvægt að embættið sem rannsaki slík mál búi yfir mannafla og sérþekkingu á rannsókn sakamála, líkt og sé að finna hjá embætti héraðssaksóknara.
Leki og spilling í lögreglu Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira