Undir einu merki Björn Óli Hauksson skrifar 18. febrúar 2016 07:00 Isavia stendur nú á tímamótum. Undanfarin ár hefur farið fram mikil skipulagsvinna innan fyrirtækisins, ólík fyrirtæki hafa verið sameinuð undir einn hatt og starfsemin verið endurskilgreind. Starfsfólk Isavia hefur unnið frábært starf og kann ég því hinar bestu þakkir fyrir. Til að undirstrika betur þær breytingar sem fyrirtækið hefur gengið í gegnum og til að horfa samhent fram á veginn hefur merki Isavia nú verið breytt. Það hefur verið mikill vöxtur í starfsemi Isavia undanfarin ár enda hefur ferðamönnum sem sækja landið heim fjölgað gríðarlega. Sú þróun mun halda áfram. Isavia hefur staðið fyrir umfangsmikilli markaðssetningu Keflavíkurflugvallar undanfarin ár og nú er svo komið að í sumar munu 25 flugfélög lenda á flugvellinum og samkvæmt spá stefnir farþegafjöldinn á þessu ári í um 6,3 milljónir. Þessi mikli vöxtur hefur kallað á fjölgun starfsfólks og á næstu misserum mun starfsfólki fjölga enn frekar. Okkur vantar fólk til að ganga til liðs við hóp okkar góða starfsfólks. Störf okkar hjá Isavia eru fjölbreytt og missýnileg, en öll jafn mikilvæg. Fjölskylda sem bregður sér í frí út fyrir landsteinana verður ekki vör við nema hluta af þeim störfum sem unnin eru hjá fyrirtækinu, en hún treystir því að allt gangi vel fyrir sig, hún finni eitthvað við sitt hæfi í flugstöðinni, töskur skili sér á réttan stað og engin vandamál verði þegar kemur að ferð flugvélarinnar. Og sá sem flýgur til Reykjavíkur frá Akureyri treystir því að búið sé að ryðja flugbrautina og ferðin gangi eins og í sögu. Fæst okkar leiða hugann að því að á bak við slíkar ferðir eru ótal handtök, handtök sem við hjá Isavia vinnum með gleði.Tækifæri í markaðssetningu Nýja merkið mun prýða allar starfsstöðvar fyrirtækisins og gefur okkur þannig betra færi á sameiginlegri markaðssetningu á allri starfsemi okkar. Það nýtist okkur til dæmis vel í markaðssetningu á fleiri flugvöllum fyrir alþjóðlegt flug, en Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur eru nú kynntir víða um heim sem alþjóðlegir flugvellir undir sömu merkjum og Keflavíkurflugvöllur. Með þessu rækjum við skyldur okkar gagnvart stefnu stjórnvalda um að auka alþjóðlegt flug um Akureyri og Egilsstaði og þessi sameiginlega ásýnd skapar mikil tækifæri í markaðssetningu á innanlandsvöllunum, sem kannski þarf að hætta að ræða um sem innanlandsvelli þegar alþjóðlegt flug mun aukast þar. Isavia er stolt af hlutverki sínu og leggur sig fram við að veita viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu. Isavia skipar stóran sess í lífi ótal fólks, við erum hluti af ferðalagi um 30 milljóna farþega sem ferðast um flugvelli okkar og flugleiðsögusvæði. Við erum meðvituð um mikilvægi okkar og finnum vel til þeirrar ábyrgðar að vera mikilvægt fyrirtæki í samgöngum og leiðandi þegar kemur að flugsamgöngum. Við erum stolt af starfi okkar og stolt af því að vera hluti af ferðalaginu hjá svo mörgum og á svo fjölbreyttan máta. Það gerum við nú öll undir einu merki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar