Formaður SÁÁ sakar forstjóra SÍ um refshátt Jakob Bjarnar skrifar 2. febrúar 2016 10:00 SÁÁ-fólk furðar sig á svörum Steingríms Ara -- telja þau lýsa refsskap og klækjabrögðum.
Arnþór Jónsson, forstjóri SÁÁ er afar ósáttur svör sem Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, vegna stefnu SÁÁ á hendur SÍ. Arnþór sakar Steingrím Ara um refshátt og telur hann svara út í hött. SÁÁ hefur stefnt ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna vanefnda Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) á samningi sem gerður var í desember 2012 um þjónustu göngudeildar SÁÁ. Vísir ræddi við Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækni á Vogi, í gær og hann telur SÍ skáka í skjóli fordóma gegn áfengissjúkum. Fjárveitingar frá Alþingi til SÁÁ eiga mið af umræddum þjónustusamningi þar sem gert er ráð fyrir 43 milljóna króna árlegri greiðslu til þeirrar þjónustu SÁÁ sem þar er kveðið á um. Hins vegar hefur hlutur SÍ í rekstrarkostnaði minnkað úr 43 milljónum króna árið fyrir gildistöku samningsins, í 27 milljónir króna árið 2013, í 17 milljónir króna árið 2014 og í núll krónur árið 2015. Þannig hafa fjárveitingar Alþingis, að mati SÁÁ, ekki skilað sér í rekstur samtakanna þrátt fyrir að full þjónusta hafi verið veitt í samræmi við gerðan samning, staðfestan af ráðherra.Afar ósáttir SÁÁ-mennSteingrímur Ari segir mikilvægt að halda því til haga að í kjölfar þess að samningnum er sagt upp setji heilbrigðisráðuneytið reglugerð um göngudeildarþjónustu vegna áfengis- og vímuefnameðferðar. Og þar sé leitast við að tryggja að þessi þjónusta sé í boði. Þetta kom fram í viðtali RÚV við forstjórann. SÁÁ-menn eru afar ósáttir við þessa útleggingu Steingríms Ara. Þeir telja þetta mikinn útúrsnúning, að þjónustan sé tryggð áfram með reglugerð en reglugerð breyti engu, ekki komi fjármagn vegna þjónustunnar með henni enda sé ekki hægt að skylda félagasamtök með reglugerð til að veita heilbrigðisþjónustu og reka hana með tapi. Í samtölum Vísis við menn innan SÁÁ telja þeir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fela sig á bak við Steingrím, en það er verið að stefna ráðherra. Vísir reyndi að ná tali af Kristjáni en hann var á fundi nú í morgun.Refsháttur og klækjabrögðArnþór Jónsson skrifar harðorðan pistil á vef SÁÁ og vandar forstjóra SÍ ekki kveðjurnar. Hann segir Steingrím ara hafa staðið í langvarandi „þrasi og þrætum við SÁÁ um efndir á samningi sem hann samdi sjálfur um þjónustu göngudeildar SÁÁ.“ Og Arnþór heldur áfram: „Hann hefur sagt upp samningi sem hann samdi sjálfur og í framhaldinu látið ráðherra staðfesta reglugerð sem er alveg eins og hinn ógildi samningur og segir að með þessu bragði hafi hann tryggt þjónustuna áfram. Svona refsháttur og klækjabrögð forstjóra Sjúkratrygginga Íslands eru ósæmandi og ég hlýt sem formaður stórra almannaheillasamtaka að óska eftir því að heilbrigðisráðherra stigi inn í þessi erfiðu samskipti með því valdi sem hann hefur.“
Tengdar fréttir SÁÁ stefnir ríkinu vegna meintra vanefnda SÁÁ telur ríkið hafa svikið gerða samninga. Upphæðin sem um ræðir skiptir tugum milljóna. 1. febrúar 2016 09:54 Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira
SÁÁ stefnir ríkinu vegna meintra vanefnda SÁÁ telur ríkið hafa svikið gerða samninga. Upphæðin sem um ræðir skiptir tugum milljóna. 1. febrúar 2016 09:54