Heildarkostnaður við hver banaslys um 660 milljónir sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 3. febrúar 2016 17:05 Hvert banaslys í umferðinni kostar heilbrigðiskerfið 659,6 milljónir króna og hvert alvarlegt slys 86,4 milljónir. vísir/valli
Samfélagslegur heildarkostnaður við hvert banaslys í umferðinni er um 659,6 milljónir króna og hvert alvarlegt slys 86,4 milljónir. Sjúkrakostnaði hefur ekki verið haldið aðskildum sérstaklega fyrir þessi slys.Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um kostnað heilbrigðiskerfisins af umferðarslysum. Velferðarráðuneytið hefur ekki tekið saman upplýsingar um hvað umferðarslys kosta heilbrigðiskerfið árlega, að sögn Kristjáns. Hann bendir hins vegar á skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands frá árinu 2012 þar sem fram kom að kostnaður vegna umferðarslysa árið 2009 hafi verið um 700 milljónir króna, sem svari til 930 milljónum króna á núverandi verðlagi. Þá komi fram í nýrri skýrslu frá 2014 að áætlaður heildarkostnaður á verðlagi 2013 vegna umferðarslysa sé 48.486 milljónir króna fyrir árið 2015, ef undan séu skilin óhöpp án meiðsla. Sjúkrakostnaður er ekki skilgreindur sérstaklega í þessum tölum, en ályktað er í skýrslunni að sjúkrakostnaðurinn sé líklega metinn allt of lágur í tölum Hagfræðistofnunar.Allt að hundrað manns á Reykjalundi vegna umferðarslysa Vilhjálmur spurði jafnframt hversu margir að jafnaði séu á endurhæfingardeildum vegna umferðarslysa og hvert hlutfall þeirra af heildarfjölda á endurhæfingardeildum sé. Í svari Kristjáns segir að á Landspítalanum hafi alls nítján einstaklingar verið skráðir á endurhæfingardeild spítalans vegna afleiðinga umferðarslysa árið 2015, eða eitt prósent. Þeir hafi ýmist verið lagðir inn á deild eða komu í dagdeildar- eða göngudeildarmeðferð. Á Reykjalundi hafi á árabilinu 2010 til 2015 komið níutíu til hundrað sjúklingar á ári til endurhæfingar í kjölfar umferðarslysa. Nær engir sjúklingar voru lagðir inn á endurhæfingardeild á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna umferðarslysa síðastliðin ár, enda flestir sem lenda í alvarlegum slysum sendir á Landspítalann. Þá liggja ekki fyrir upplýsingar um hlutfall sjúklinga sem komu á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Komi vel til greina að segja sig úr ASÍ Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira