Ísland og Bandaríkin – hvað er svona sérstakt ? Ólafur Baldursson skrifar 21. janúar 2016 07:00 Talsvert hefur verið rætt og ritað um samband Íslands og Bandaríkjanna á undanförnum árum, enda af nógu að taka og margar hliðar á málinu. Mest hefur verið fjallað um sambandið út frá sjónarhóli utanríkis- og varnarmála, umhverfismála og viðskipta. Í því samhengi hafa menn velt fyrir sér orðalaginu „hið sérstaka samband“ og ýmsir dregið það í efa eftir þær breytingar sem áttu sér stað á skipulagi varnarmála við brotthvarf varnarliðsins árið 2006. En ég ætla ekki að hætta mér út á það sprengjusvæði í þessum pistli. Það sem fékk mig til þess að setja orð á blað núna var miklu fremur persónuleg reynsla og sú staðreynd að fjölskyldumeðlimir og margir vinir og kunningjar hafa sótt sér menntun og þjálfun í ýmsum greinum til Bandaríkjanna á undanförnum 60 árum. Um er að ræða margar ólíkar greinar svo sem blaðamennsku, málvísindi, viðskiptafræði, íþróttir, gervigreindarfræði, veðurfræði, lyfjafræði, verkfræði, hjúkrunarfræði, læknisfræði o.fl. Mér hefur fundist athyglisvert hve margir úr þessum hópi lýsa reynslu sinni af námsdvöl í Bandaríkjunum með afar jákvæðum hætti, en hef vissulega engan raunverulegan samanburð við önnur lönd hvað þessar vangaveltur varðar. En það er sláandi hve oft heyrist jákvæð lýsing á vináttu og áframhaldandi samvinnu við Bandaríkjamenn löngu eftir að formlegu námi lýkur. Ég þekki minna til í öðrum greinum svo sem kvikmyndagerð og tónlist, en sé ekki betur en samvinna við Bandaríkjamenn sé einnig mikil á þeim sviðum. Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Bandaríkjanna hafa tæplega 3.000 Íslendingar fengið vegabréfsáritun sérstaklega til ýmiss konar náms eða þjálfunar í Bandaríkjunum á undanförnum 5 árum. Öll þessi sambönd eru afar mikils virði í sjálfu sér, en einnig og ekki síst vegna þess að þau opna ný tækifæri fyrir ungt fólk og hafa því áframhaldandi jákvæð áhrif á náms- og starfsferil fjölda Íslendinga. Hvað framhaldsnám og starfsnám í læknisfræði varðar, þá greiða bandarísk tryggingafélög í raun þann námsstyrk sem læknar í slíku námi fá, m.a. fyrir mikla viðveru og vaktir, og má því segja að bandarísk tryggingafélög hafi á vissan hátt aukið virði íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Þá eru ótaldir þeir mörgu Íslendingar sem hlotið hafa styrk til náms í Bandaríkjunum vegna afreka sinna í íþróttum, en slíkir styrkir eru algengir og hafa opnað mikil tækifæri fyrir ungt fólk til náms og íþróttaiðkunar. Um er að ræða knattspyrnu, frjálsar íþróttir, golf, körfuknattleik og fleiri greinar. Athygli vekja einnig dæmi um að í vissum íþróttum, s.s. körfuknattleik, getur reynsla bandarískra leikmanna á Íslandi nýst þeim sem stökkpallur inn í sterkari deildir í Evrópu. Nokkuð er einnig um að bandarískir þjálfarar hafi starfað hér á landi í ýmsum íþróttum. Þegar horft er til mælinga á gæðum háskólastarfs virðast margir bandarískir háskólar standa framarlega. Þá er áhugavert að leyfa sér að setja upp einfalda formúlu sem margfaldar hin mörgu persónulegu tengsl, gæði náms og langan líftíma tengslanna sem getur náð til nokkurra kynslóða. Niðurstaðan yrði án efa „há tala“, og mikils virði fyrir einstaklinga og íslenskt samfélag til langs tíma. Þeim dæmum fjölgar einnig þar sem Íslendingar gefa til baka til bandarísks samfélags í gegnum þessi sambönd þannig að borgarar beggja landa hagnast af samskiptunum. Það liggur því beint við að velta fyrir sér, hvort „hinu sérstaka sambandi“ þjóðanna verði ekki best lýst með þeim fjölmörgu og lifandi tengslum sem rakin hafa verið hér, fremur en að sambandið sé sérstakt á einhvern óræðan pólitískan eða diplómatískan hátt. Þá mætti spyrja hvort ekki væri farsælt að rækta sambandið í samræmi við hið raunverulega eðli þess, öllum til góðs til skemmri og lengri tíma litið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir,Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Talsvert hefur verið rætt og ritað um samband Íslands og Bandaríkjanna á undanförnum árum, enda af nógu að taka og margar hliðar á málinu. Mest hefur verið fjallað um sambandið út frá sjónarhóli utanríkis- og varnarmála, umhverfismála og viðskipta. Í því samhengi hafa menn velt fyrir sér orðalaginu „hið sérstaka samband“ og ýmsir dregið það í efa eftir þær breytingar sem áttu sér stað á skipulagi varnarmála við brotthvarf varnarliðsins árið 2006. En ég ætla ekki að hætta mér út á það sprengjusvæði í þessum pistli. Það sem fékk mig til þess að setja orð á blað núna var miklu fremur persónuleg reynsla og sú staðreynd að fjölskyldumeðlimir og margir vinir og kunningjar hafa sótt sér menntun og þjálfun í ýmsum greinum til Bandaríkjanna á undanförnum 60 árum. Um er að ræða margar ólíkar greinar svo sem blaðamennsku, málvísindi, viðskiptafræði, íþróttir, gervigreindarfræði, veðurfræði, lyfjafræði, verkfræði, hjúkrunarfræði, læknisfræði o.fl. Mér hefur fundist athyglisvert hve margir úr þessum hópi lýsa reynslu sinni af námsdvöl í Bandaríkjunum með afar jákvæðum hætti, en hef vissulega engan raunverulegan samanburð við önnur lönd hvað þessar vangaveltur varðar. En það er sláandi hve oft heyrist jákvæð lýsing á vináttu og áframhaldandi samvinnu við Bandaríkjamenn löngu eftir að formlegu námi lýkur. Ég þekki minna til í öðrum greinum svo sem kvikmyndagerð og tónlist, en sé ekki betur en samvinna við Bandaríkjamenn sé einnig mikil á þeim sviðum. Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Bandaríkjanna hafa tæplega 3.000 Íslendingar fengið vegabréfsáritun sérstaklega til ýmiss konar náms eða þjálfunar í Bandaríkjunum á undanförnum 5 árum. Öll þessi sambönd eru afar mikils virði í sjálfu sér, en einnig og ekki síst vegna þess að þau opna ný tækifæri fyrir ungt fólk og hafa því áframhaldandi jákvæð áhrif á náms- og starfsferil fjölda Íslendinga. Hvað framhaldsnám og starfsnám í læknisfræði varðar, þá greiða bandarísk tryggingafélög í raun þann námsstyrk sem læknar í slíku námi fá, m.a. fyrir mikla viðveru og vaktir, og má því segja að bandarísk tryggingafélög hafi á vissan hátt aukið virði íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Þá eru ótaldir þeir mörgu Íslendingar sem hlotið hafa styrk til náms í Bandaríkjunum vegna afreka sinna í íþróttum, en slíkir styrkir eru algengir og hafa opnað mikil tækifæri fyrir ungt fólk til náms og íþróttaiðkunar. Um er að ræða knattspyrnu, frjálsar íþróttir, golf, körfuknattleik og fleiri greinar. Athygli vekja einnig dæmi um að í vissum íþróttum, s.s. körfuknattleik, getur reynsla bandarískra leikmanna á Íslandi nýst þeim sem stökkpallur inn í sterkari deildir í Evrópu. Nokkuð er einnig um að bandarískir þjálfarar hafi starfað hér á landi í ýmsum íþróttum. Þegar horft er til mælinga á gæðum háskólastarfs virðast margir bandarískir háskólar standa framarlega. Þá er áhugavert að leyfa sér að setja upp einfalda formúlu sem margfaldar hin mörgu persónulegu tengsl, gæði náms og langan líftíma tengslanna sem getur náð til nokkurra kynslóða. Niðurstaðan yrði án efa „há tala“, og mikils virði fyrir einstaklinga og íslenskt samfélag til langs tíma. Þeim dæmum fjölgar einnig þar sem Íslendingar gefa til baka til bandarísks samfélags í gegnum þessi sambönd þannig að borgarar beggja landa hagnast af samskiptunum. Það liggur því beint við að velta fyrir sér, hvort „hinu sérstaka sambandi“ þjóðanna verði ekki best lýst með þeim fjölmörgu og lifandi tengslum sem rakin hafa verið hér, fremur en að sambandið sé sérstakt á einhvern óræðan pólitískan eða diplómatískan hátt. Þá mætti spyrja hvort ekki væri farsælt að rækta sambandið í samræmi við hið raunverulega eðli þess, öllum til góðs til skemmri og lengri tíma litið.
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar
Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Valdið í reykfylltum bakherbergjum: Kerfisvandi sem krefst uppskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun