Innlent

Á þriðja hundrað skjálftar við Öxarfjörð

Kópaskersviti.
Kópaskersviti. vísir/pjetur
Á þriðja hundrað skjálftar hafa mælst í Öxarfirði frá miðnætti. Jarðskjálftahrina hefur verið viðvarandi á þessum slóðum undanfarna og í nótt jókst skjálftavirkni á ný. Jarðskjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessu svæði.

Stærsti skjálftinn var af stærðinni 3,6 og varð klukkan fjögur í nótt. Upptök hans voru í Öxarfirði, um tólf kólómetrum vestsuðvestur af Kópaskeri. Skjálftinn fannst á Kópaskeri og bárust tilkynningar til Veðurstofunnar. Tveir skjálftar um þrír að stærð voru á sömu slóðum klukkan hálf fjögur og rúmlega fjögur í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×