Innlent

Meirihluti landsmanna telur að til sé fólk með skyggni- og miðilsgáfu

Atli Ísleifsson skrifar
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 69% kvenna trúa á slíkar gáfur borið saman við 40% karla.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 69% kvenna trúa á slíkar gáfur borið saman við 40% karla. Vísir/Getty
Meirihluti Íslendinga telur að til sé fólk með skyggni- og miðilsgáfu. Í nýrri könnun MMR kemur fram að rúmlega helmingur þeirra sem tóku afstöðu, eða 53,7 prósent, sögðust trúa að til væri fólk með skyggni- eða miðilsgáfur og tæpur þriðjungur svarenda, 31,9 prósent, sögðust hafa farið á miðilsfund.

Í frétt MMR kemur fram að nokkur munur reynist á trú fólks á að til séu skyggni- eða miðilsgáfur eftir kyni, aldri, búsetu og stuðningi við stjórnmálaflokka.

„Þannig virðast konur frekar trúa að til sé fólk með skyggni-eða miðilsgáfur en karlar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 69% kvenna trúa á slíkar gáfur borið saman við 40% karla.

Þá kvaðst 70% fólks á aldrinum 68 ára og eldri trúa að til sé fólk með skyggni- eða miðilsgáfur borið saman 41% fólks undir þrítugu.

Íbúar á landsbyggðinni sögðust frekar trúa á fólk með skyggni- eða miðilsgáfur (67%) en íbúar á höfuðborgarsvæðinu (46%).

Þá reyndust þeir sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn frekar trúa á fólk með skyggni-eða miðilsgáfur en stuðningsfólk annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 77%  trúa á fólk með skyggni-eða miðilsgáfu, borið saman við 42% Sjálfstæðismanna og 40% Pírata,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×