Innlent

Alvarlegt umferðarslys í Reykjanesbæ

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Einn er talinn alvarlega slasaður eftir tveggja bíla árekstur í Reykjanesbæ síðdegis.
Einn er talinn alvarlega slasaður eftir tveggja bíla árekstur í Reykjanesbæ síðdegis. Vísir/Pjetur
Alvarlegt umferðarslys varð um klukkan fimm í Reykjanesbæ nú síðdegis. Tveir bílar rákust saman á Njarðarbraut en tveir farþegar voru í öðrum bílnum en bílstjóri hins bílsins var einn á ferð.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er einn alvarlega slasaður en allt tiltækt lið viðbragðsaðila ásamt tækjabíl var kallað út vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×