Vill Svartárvirkjun í umhverfismat Svavar Hávarðsson skrifar 23. janúar 2016 07:00 Svartá á upptök sín í Svartárvatni og rennur um 16 kílómetra leið þar til hún fellur í Skjálfandafljót. Mynd/jaþ
Umhverfisstofnun (UST) telur að fyrirhuguð virkjun í Svartá í Bárðardal skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Ástæðan er sú að mikilvægum álitamálum er ekki svarað nægilega skýrt í þeirri undirbúningsvinnu sem er lokið – ekki síst um sjónræn áhrif, útlit og staðsetningu mannvirkja og skortur á mótvægisaðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar. Um er að ræða 9,8 megavatta (MW) virkjun sem fyrirtækið SSB-orka ehf. áformar að reisa við Svartá. Þegar virkjun er undir 10 MW skal það metið, samkvæmt lögum, í hverju tilviki með tilliti til eðlis, umfangs og staðsetningar hvort framkvæmdin sé háð mati og er það á hendi Skipulagsstofnunar að taka ákvörðun þar um. Álit UST kemur fram í umsögn sem Skipulagsstofnun leitaði eftir í þeirri vinnu. Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um hafa komið fram áhyggjur og tortryggni umhverfisverndarfólks á áætlanir um Svartárvirkjun, eins og þær liggja fyrir í tillögum að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi sveitarfélagsins, Þingeyjarsveitar. Mun minna sé gert úr áhrifum virkjunar en efni standa til; virkjunin muni hafa mikil áhrif á ósnortið umhverfi og lífríki Svartár, auk þess sem framkvæmdin teygir sig alla leið inn á friðlýst svæði Laxárdals í Suður-Þingeyjarsýslu. Er fullyrt að hálendisvin muni bera óafturkræft og óbætanlegt tjón af fyrirhuguðum framkvæmdum. Efast er um vinnu verkfræðistofunnar Verkís um tillögur um breytingar á aðalskipulagi og að nýju deiliskipulagi þar sem fjallað er stuttlega um umhverfisþætti framkvæmdarinnar. Þar segir að fyrirhuguð breyting sé „ekki talin hafa veruleg áhrif á metna umhverfisþætti með tilliti til sveitarfélagsins sem heildar“, og því er ekki gert ráð fyrir sérstakri vöktun umhverfisþátta umfram venjubundið eftirlit á framkvæmda- og rekstrartíma. Við þessari vinnu er UST að bregðast. Niðurstaðan er, þrátt fyrir að ýmislegt sé vel unnið, að ef ekki verði „vandað til mannvirkjagerðar við Svartárvirkjun gæti framkvæmdin haft umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér“. Af skýrslu Veiðimálastofnunar vegna Svartárvirkjunar má ráða að veiði leggist nánast af á áhrifasvæði virkjunarinnar enda Svartá svo gott sem þurrkuð upp á 3,1 kílómetra kafla, en sjálfbærar veiðar, þar sem skylt er að sleppa öllum urriða og bleikju, hafa verið stundaðar í Svartá í áratugi.
Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Fleiri fréttir Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Sjá meira