Hríðarbylur skellur á austurströnd Bandaríkjanna Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2016 22:15 Lögreglumenn standa fyrir framan byggingu hæstaréttar í Washington fyrr í dag. Vísir/AFP
Mikill hríðarbylur hefur nú skollið á austurströnd Bandaríkjanna og er búist við gríðarlegri ofankomu í meðal annars í höfuðborginni Washington og New York. Bandarísk yfirvöld hafa varað tugi milljóna íbúa austurstrandarinnar við að bylurinn kunni víðs vegar að lama allt samfélagið. Í frétt BBC kemur fram að búist sé við að rúmlega 70 sentimetra snjór komi til með að falla á næstu klukkustundum. Bylurinn hefur haft mikil áhrif á samgöngur og þannig er búið að aflýsa þúsundum flugferða og hafa íbúar verið hvattir til að halda kyrru fyrir heima. Átta manns hafa enn sem komið er látið lífið í óveðrinu sem hefur haft áhrif allt frá Arkansas í suðri og til Massachusetts í norðaustri. Langar biðraðir hafa myndast í verslunum þar sem fólk hefur verið að birgja sig upp af mat og fleiri nauðsynjum. Búist er við að ástandið verði einna verst í höfuðborginni Washington þar sem borgarstjórinn Muriel Bowser hefur varað við að met frá árinu 1922 kunni að verða slegið, en þá féllu 71 sentimetrar af snjó á tveimur dögum í borginni. Búið er að lýsa yfir neyðarástandi í ríkjunum Tennessee, Norður-Karólínu, Virginíu, Maryland, Pennsylvaníu og í hluta af nokkrum ríkjum til viðbótar.
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira