Fjórtán ára drengur stakk skólabróður sinn til bana á Skáni Atli ísleifsson skrifar 12. janúar 2016 07:56 Drengurinn var stunginn um hádegisbil og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Fimmtán ára drengur var í gær stunginn til bana af fjórtán ára skólabróður sínum í grunnskóla í bænum Broby í norðurhluta Skánar í Svíþjóð. Sérstök minningarathöfn verður í dag haldin í Göingeskólanum þar sem árásin átti sér stað. Lögreglustjórinn Pär Cederholm segir að lögregla muni reyna að hraða rannsókninni á því hvað liggi að baki morðinu. Hann segir málið sérstaklega erfitt þar sem það veki sterkar tilfinningar fólks og sé mikill harmleikur. „Við munum þó ef til vill aldrei komast nákvæmlega að því hvað gerðist þar sem annar málsaðila er ekki lengur á lífi,“ segir Cederholm í samtali við SVT. Drengurinn var stunginn um hádegisbil og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést.Aftonbladet greinir frá því að drengurinn sem grunaður er um verknaðinn hafi verið beittur einelti í skólanum um lengri tíma. Faðir hans segir að hann hafi þurft að fara með son sinn á sjúkrahús skömmu fyrir jólafríið þar sem hann hafi verið beittur ofbeldi og að myndbandsupptaka af atvikinu hafi verið dreift meðal nemenda skólans á Snapchat. „Ég hringdi í skólann og sagði frá því að honum liði illa, en þeir gerðu ekkert,“ segir faðir drengsins við Aftonbladet. Robert Dirksen, skólastjóri Göingeskólans, segir að ákvörðun hafi verið tekin að loka ekki skólanum í dag vegna atburða gærdagsins. „Okkur þótti betra að vera með nemendurna í skólanum með vinum sínum og kennurum í stað þess að þeir væru einir heima.“ Lögregla segir að ekkert liggi enn fyrir um ástæður árásarinnar. Árásarmaðurinn var yfirheyrður í gær og verður aftur yfirheyrður síðar í dag.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira