Íslamska ríkinu kennt um sjálfsvígsárásina í Istanbúl Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. janúar 2016 07:00 Fólk kemur sér burt af svæðinu sem var afgirt í Istanbúl eftir árásina í gær. vísir/EPA
Að minnsta kosti níu af þeim 25 sem létust eða særðust í sjálfsvígsárásinni í Istanbúl í gær voru Þjóðverjar. Þýskir ráðamenn segja líklegt að einhverjir Þjóðverjar séu meðal hinna látnu. Recep Tayyip Erdogan forseti fullyrðir að árásarmaðurinn hafi verið af sýrlenskum uppruna. Ahmet Davutoglu forsætisráðherra segir hann hafa verið liðsmann Daish-samtakanna, eða Íslamska ríkisins svonefnda. Tíu manns voru sagðir látnir og fimmtán særðir, þar af voru tveir enn í lífshættu. Árásarmaðurinn sprengdi sjálfan sig í loft upp á fjölförnum ferðamannastað í gamla hluta borgarinnar, skammt frá Bláu moskunni og kirkjunni Hagia Sophia, sem nú er safn. Þetta gerðist klukkan rúmlega tíu að staðartíma, eða laust upp úr klukkan átta að íslenskum tíma. Fyrir rúmu ári sprengdi kona sig í loft upp við lögreglustöð á sömu slóðum. Einn lögreglumaður lét þar lífið. Undanfarna mánuði hafa nokkrar mannskæðar sprengjuárásir verið gerðar í Tyrklandi. Meira en hundrað manns létu lífið í höfuðborginni Ankara í október, þegar tvær sjálfsvígsárásir voru gerðar þar samtímis. Þá létu meira en 30 manns lífið í júlí í sprengjuárás í bænum Suruc, sem er skammt frá landamærum Sýrlands. Tyrknesk stjórnvöld hafa kennt Daish-samtökunum um þessar árásir. Í suðausturhluta Tyrklands, þar sem Kúrdar búa einkum, hafa enn fremur verið harðnandi átök undanfarna mánuði, eða allt frá því vopnahlé milli Kúrda og Tyrkja var rofið í júlí síðastliðnum. Vopnahléið hafði staðið í tvö ár og vakið vonir um að sættir væru smám saman að takast eftir meira en tveggja áratuga vopnaða baráttu Kúrda fyrir sjálfstjórn. Í sumar sem leið fengu tyrknesk stjórnvöld stuðning frá NATO til að hefja árásir á hryðjuverkamenn, og tilgreindu Tyrkir í rökstuðningi sínum til NATO að hætta stafaði bæði frá Kúrdum og frá Daish-samtökunum. Tyrkir hafa þó verið sakaðir um að beina árásum sínum frekar að Kúrdum en að Daish-samtökunum, sem um leið grefur undan baráttu Kúrda gegn Daish í Sýrlandi.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira