Stefnuræða Bandaríkjaforseta: Obama varði stefnu sína með kjafti og klóm Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2016 07:14 Barack Obama Bandaríkjaforseti flutti síðustu stefnuræðu sína í sal fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Vísir/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti varði arfleifð sína með kjafti og klóm í stefnuræðu sinni fyrir bandaríska þinginu sem hann flutti í nótt, þeirri síðustu sem hann flytur, en hann lætur af embætti í upphafi næsta árs. Forsetinn eyddi miklu púðri í að gagnrýna þann neikvæða tón sem væri í frambjóðendum til næstu forsetakosninga og sagði að Bandaríkin væru sterkasta efnahagskerfi jarðar. „Í þessu síðasta ávarpi mínu í þessum sal vil ég ekki einungis ræða um næsta ár. Ég vil einblína á næstu fimm ár, tíu ár og lengra. Ég vil einblína á framtíð okkar,“ sagði Obama.Í frétt BBC segir að forsetinn hafi farið yfir helstu mál sem hann hafi komið til leiðar, meðal annars breytingar á heilbrigðiskerfinu en greindi einnig frá því sem hann sæi eftir á ferlinum. Þar sagði hann hæst bera þá staðreynd að samskipti Demókrata og Repúblikana væru sífellt að verða verri og verri. Hann gagnrýndi einnig að öfgafyllstu skoðanirnar fengju sífellt meira vægi í umræðunni og sagði það slæma þróun fyrir samfélagið. Forsetinn lagði áherslu á nauðsyn þess að bregðast við ójafnrétti, að nýta tæknina til að bregðast við loftslagsbreytingum og nauðsn þess að viðhalda þjóðaröryggi án þess að dragast inn í alþjóðlegar deilur.Upphafsorð Obama. Obama segir að allir þeir sem segi að efnahagur Bandaríkjanna sé á niðurleið sé að ljúga. Forsetinn segir að kerfið eigi ekki að vera hannað fyrir þá auðugustu. „Látum Bandaríkin verða landið sem læknar krabbamein.“
Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Innlent Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Fleiri fréttir Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Sjá meira