Segja árásarmennina hafa verið innblásna af hryðjuverkaárásunum í París Atli ísleifsson skrifar 14. janúar 2016 09:51 Árásarmennirnir komu á vélhjólum og voru vopnaðir handsprengjum og skotvopnum. Vísir/AFP
Lögregla í Jakarta í Indónesíu segir að hryðjuverkamennirnir sem réðust til atlögu í borginni í morgun hafi verið innblásnir af árásunum í París í nóvember síðastliðinn. CNN greinir frá því að tíu manns hafi fallið í árásunum, þar af fjórir árásarmannanna. Lögregla grunar að hópur með tengsl við ISIS hafi staðið fyrir árásunum. Röð sprenginga skók indónesísku höfuðborgina í morgun, auk þess að árásarmennirnir skutu á fólk. Árásirnar voru meðal annars gerðar í Sarinah verslunarmiðstöðinni, nálægt forsetahöll landsins, og við skrifstofur Sameinuðu þjóðanna. Guardian greinir frá því að árásarmennirnir hafi komið á vélhjólum og verið vopnaðir handsprengjum og skotvopnum. Sjónarvottar segir í samtali við AP að þrír menn hafi sprengt sjálfa sig í loft upp inni á Starbucks-stað og að tveir vopnaðir menn hafi ráðist inn á nálæga lögreglustöð. Einn lögreglumaður er sagður hafa fallið. Joko Widodo, forseti Indónesíu, segir ljóst að um hryðjuverkaárás sé að ræða. Segir hann að lögregluyfirvöld hafi náð tökum á ástandinu. Hvatti hann íbúa höfuðborgarinnar að halda ró sinni. Mörg hundruð lögreglumenn voru á götum borgarinnar og kom nokkrum sinnum til skotbardaga en þó er enn ekki vitað hverjir standa að baki árásunum. Indónesía hefur þó verið á hæsta viðbúnaðarstigi um nokkurn tíma vegna hótana frá ISIS samtökunum um að gera árásir í landinu, en um tvö hundruð Indónesar eru taldir hafa farið til Sýrlands til að ganga í samtökin. Al Jazeera greinir frá því að hollenskur starfsmaður Sameinuðu þjóðanna sé í hópi hinna látnu.
Tengdar fréttir Fjölmargir látnir í hryðjuverkaárás í Jakarta Röð sprenginga hafa skekið höfuðborg Indónesíu í nótt. 14. janúar 2016 07:07 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira
Fjölmargir látnir í hryðjuverkaárás í Jakarta Röð sprenginga hafa skekið höfuðborg Indónesíu í nótt. 14. janúar 2016 07:07