Innlent

Lesið fyrir hunda á Borgarbókasafninu

Ásgeir Erlendsson skrifar
Borgarbókasafnið, í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, bauð börnum að heimsækja safnið í dag og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa.

 

Þetta var fyrsta lestrarstundin af sex sem haldin er í Borgarbókasafninu en markmiðið er að hvetja börn til yndislesturs. Þorbjörg Karlsdóttir, bókasafnsfræðingur, hefur veg og vanda að skipulagningu stundanna.

 

„Við höfum fengið tvo hunda í heimsókn og í dag gefst átta börnum kostur á því að lesa fyrir hundana. Að lesa fyrir hunda erlestrarhvetjandi því hundarnir hlusta bara, þeir dæma ekki. Þeir leiðrétta ekki heldur eru þeir þarna og svo eru hundar líka dýr sem börn eru mjög hænd að.“

 

Það var auðséð að lestrarstundin sló í gegn bæði hjá krökkunum og hundunum.

 

„Mér finnst þetta ganga vel. Þessir krakkar sem sitja þarna eru á misjöfnum stað í lestri en þau eru mjög þolinmóð að lesa fyrir hundana. Þetta eru stórir hundar en það er búið að þjálfa þá sérstaklega.“

 

Þó lestarstundin í dag hafi verið sú fyrsta í Borgarbókasafninu er hugmyndin ekki ný af nálinni en heimsóknir sem þessar hafa staðið til boða í nágrannalöndunum.

 

„Þetta er eitthvað sem er að gerast á norðurlöndunum að hundar komi inn í bókasöfn og börn fá tækifæri til að lesa fyrir þá.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×