Innlent

Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra: „Imsland fyrir Ísland!“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Matthías Imsland
Matthías Imsland vísir/
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoðarmann sinn. Matthías hefur undanfarin ár starfað sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hans verkefni í forsætisráðuneytinu verða meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Matthías er 41 árs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS-prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnám við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum.

Matthías starfaði áður sem ráðgjafi fyrir erlend fyrirtæki á sviði framtaksfjárfestinga. Þar áður var hann framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express.

Forsætisráðherra hefur haft einn aðstoðarmann, Jóhannes Þór Skúlason, frá því að Ásmundur Einar Daðason lét af starfi aðstoðarmanns á síðasta á ári. Með ráðningu Matthíasar verða aðstoðarmennirnir aftur tveir.

Uppfært klukkan 13:55

Umsjónarmaður Facebook-síðu forsætisráðuneytisins fagnar komu Matthíasar og skrifar: „Imsland fyrir Ísland!“ í færslu með fréttinni af vefsíðu ráðuneytisins.

Imsland fyrir Ísland!

Posted by Forsætisráðuneytið on Monday, January 18, 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×